Það vita flestir sem fylgjast með snjallsímaheiminum að LG er að koma á markað með nýtt flaggskip sem mun heita LG G3 og mun það taka við af LG G2 sem við fjölluðum um fyrir skemmstu.
Hér má sjá kynningarmyndband
Þetta símtæki lýtur allsvkalega vel út á blaði og skartar meðal annars
- Snapdragon 801 kubbasett
- Fjórkjarna örgjörvi
- 3 GB vinnsluminni
- 32 GB geymslurými
- 5.5″ IPS skjár með 2560 x 1440 skjáupplausn
- 13 MP myndavél
Segi ekki annað en það verður svakalega gaman að prófa þetta tryllitæki þegar það kemur en það mun líklega verða fljótlega í Júní.
Heimild og mun fleiri myndir: TheVerge