Heim UmfjöllunUmfjöllun Snjallsímar Fyrstu kynni – OnePlus 6T

Fyrstu kynni – OnePlus 6T

eftir Jón Ólafsson

Undanfarið höfum við hér á Lappari.com verið með OnePlus 6T í prófunum frá Tölvutek en hann kom í sölu í nóvember 2018. Ég hef áður prófað símtæki frá OnePlus og hlakkaði því töluvert til þess að prófa kvikindið og því kominn tími á að losa um ritstífluna og koma einhverju á blað.

Hvaða tæki er þetta og hvernig eru okkar fyrstu kynni af því?

  • ubbasett: Qualcomm Snapdragon 845 (10 nm)
  • CPU: Octa-core (4×2.8 GHz Kryo 385 Gold & 4×1.7 GHz Kryo 385 Silver)
  • GPU: Adreno 630
  • Skjár: 6.41″ Optic Amoled skjár með 1080 x 2340 upplausn (402 ppi)
  • Minni: 6 GB RAM
  • Geymslurými; 128 GB (hægt að fá 256GB geymslurými og þá 8GB RAM)
  • microSD rauf: Nei
  • Myndavélar: Tvær: 16 MP, f/1.7, 25mm (wide) og 20 MP, f/1.7, 25mm (wide), 1/2.8″, 1.0µm, PDAF með IOS, Super Slow-mo @ 960 fps, o.s.frv.
  • Flash: Dual-Led
  • Sjálfuvél: 16MP (f2.0, 1080p á 30fps)
  • Rafhlaða: 3700mAh (ekki removable)
  • Stýrikerfi: Android 9.0 (Pie)
  • Stærðir: 157.5mm x 74.8mm x 8.2mm
  • Þyngd: 185g
  • Símkerfi: LTE / 3G / 2G / GSM – Rauf fyrir 2 sim kort (t.d. vinnu- og persónulegt SIM).
  • Tengimöguleikar: Wi-Fi 802.11 a/b/g/n/ac / NFC / Bluetooth 5
  • Vatnsheldur: Ekki IP vottaður en á að vera ryk- og skvettuvarin.

Fyrstu kynni okkar af símanum eru mjög góð, síminn er einfaldur í notkun, mjög snarpur og með góðan skjá. Tækið fellur vel í hendi og er mjög vel búinn vélbúnaðarlega eins og sést hér að ofan. Öll upplifun af almennri notkun er mjög jákvæð og hlakka ég til í að kafa í frekari umfjöllun sem mun birtast hér á Lappara fljótlega.

Hér má síðan sjá afpökkun á OnePlus 6T.

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira