Heim UmfjöllunUmfjöllun Snjallsímar Microsoft Lumia 950 XL

Microsoft Lumia 950 XL

eftir Jón Ólafsson

Seint á síðasta ári kom í sölu Microsoft Lumia 950 og Lumia 950 XL sem er eins og nafnið segir til um stóri bróðir 950. Síminn var kynntur í október og kom í sölu í byrjun desember hér á Íslandi en við kynntum okkur símtækið fyrst hjá Opnum Kerfum í nóvember í fyrra.

Þessara símtækja hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu enda orðið nokkuð síðan síðasta Windows flaggskip kom á markaðinn.

Windows Phone kom á markaðinn fyrir um fimm árum síðan og Windows 10 Mobile er nýjasta tilraun tæknirisans til þess að heilla notendur. Það er töluvert um nýjungar í Windows 10 Mobile en stýrikerfið ber þó enn með sér ýmist vandamál tengum forritum en meira um það hér að néðan.

 

 

Hér má sjá afpökkunarmyndbandið okkar.

 

Hönnun og vélbúnaður

Lumia 950 XL er ekki fallegasta símtækið á markaðnum og í raun og veru er það nokkuð langt frá því. Útlitið hefur samt vanist vel þessa tæpu 2 mánuði sem ég hef verið með símtækið og sér í lagi ef notendur kaupa sér hlífar frá t.d. Mozo sem umbreyta símtækinu eins og sjá má hér.

Síminn er massífur og virkar mjög sterklegur í hendi og eftir mánuð í notkun án hlífa, eða sérmeðferðar, þá sér ekki á honum, ekki ein rispa á skjá eða bakhlið. Útlitið hefur breyst töluvert á Lumia símtækjum frá Lumia 920, sem var sterkur sem múrsteinn, yfir í Lumia 925 sem var áltæki sem þoldi ekki mikið hnjask. Lumia 950 er svona mitt á milli, mjög sterklegur en án þess að vera eins og múrsteinn að útliti eða þynngd.

 

Lumia950XL_6

 

Framhliðin er þakin þessum gullfallega 5,7″ Clear Black skjá en vegna stærðar er tækið í svonefndum Phablet flokki, milli símtækis og spjaldtölvu. Skjárinn sem er með WQHD upplausn eða 2560 x 1440 (518 ppi eða pixel per inch) er með Gorilla Glass 4 rispuvörn. Skjárinn rúnast ekki inn í hliðar eins og margir Lumia símar gera heldur nær hann útað köntum og smellur ofaní coverið sem þekur hliðar og bakhlið. Allur frágangur er vandaður og samskeyti milli mismunandi hluta er vel útfærð og vönduð.

Bakhlið er hægt að fá í svörtu og hvítu en á bakhlið er myndavélin, flash og hátalari ásamt látlausu Microsoft logo. Undir bakhlið er síðan sleðar fyrir SIM og microSD kort.

Helstu stærðir (mm)

  • Hæð: 151.9
  • Breydd: 78.4
  • Þykkt: 8.1
  • Þyngd 165 gr

Á framhlið eru þrír snertitakkar eins á öllum Windows Phone símum, bakka, heim og leit. Þeir eru partur af skjánum núna og sjáanlegir með að strjúka upp skjáinn en þeir hverfa bara ef appið sem notað er gerir það.

 

Lumia950XL_7

 

Þar fyrir utan eru fjórir hefðbundnir takkar og eru þeir allir á hægri hlið símans. Það er sértakki fyrir myndavél, powertakki ásamt hækka/lækkatakka. Staðsetning á þessum tökkum er mjög góð og næst með léttu móti í alla takka með annari hendi. Takkarnir eru frekar stífir og virðast vera mjög sterklegir. Ein breyting er þó frá fyrri Lumia tækjum og hún er að power takki er á milli hækka/lækka takka og tók smá tíma að venjast því.

Stutt kynningarmyndband frá Microsoft.


Lumia 950 XL keyrir á nýjasta kubbasettinu frá Qualcomm sem heitir MSM8994 Snapdragon 810. Símtækið notar tvo fjórkjarna örgjörva (kallast OctaCore), annar er Cortex-A53 og keyrir á 1.5GHZ meðan hinn er Cortex-A57 og keyrir á 2GHZ. Símtækið er með Adreno 430 skjástýringu (GPU) á 3GB í vinnsluminni.

Þessir öflugu örgjörvar skila sér í viðbragðsgóðu viðmóti og hef ég aldrei orðið var við hökt í símann, hvort sem er í stýrikerfinu sjálfu, forritum eða í leikjum.  Síminn er gríðarlega sprækur og skemmtilegur í vinnslu og eldsnöggur að framkvæma allar aðgerðir.

Lumia 950 XLmeð 32GB geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi, ljósmyndir og annað margmiðlunarefni. Þetta er ágætisstærð og dugar líklega mörgum en gott er að vita af því að símtækið er með rauf fyrir microSD kort sem má vera allt að 200GB að stærð.

Þegar ég var búinn að setja upp helstu forrit, tölvupóst, leiki, og taka slatta af ljósmyndum þá var ég með um 20GB laust. Þar sem að síminn tekur afrit af öllum myndum og myndböndum beint á OneDrive þá ætti að vera óhætt að eyða myndum af símtækinu ef plássið minnkar. Af gömlum vana tengi ég enn símana mína reglulega við tölvu til að tæma af þeim en það er önnur saga.

 

Tengimöguleikar

Microsoft Lumia 950 XL er með USB-C tengi sem er nýjung í Lumia símtækjum. Reyndar er USB-C nýjung sem væntanlega mun halda áfram að ryðja sér rúms í nýjum tækjum en tengið er tilraun markaðarins til að vera þessi eina USB snúra sem mun leysa allar hinar (Type-A, B, Micro, Macro o.s.frv) af hólmi.

 

Lumia950XL_9

 

Í stuttu máli má segja að helstu kostirnir USB-C staðalsins séu þrír

  1. Mögulegt að flytja meiri gögn (hraði).
  2. Mögulegt að flytja mun meiri spennu (hraðhleðsla).
  3. Það skiptir ekki máli hvernig hún snýr og leysir hún þannig gamallt og þekkt “USB vandamál”

Hvað á ég samt að gera við allar þessar MicroUSB súrur sem ég á?

 

Tengið er eins og oftast neðst á símtæki þannig að einfalt er að tengja símann við tölvu til að sækja eða setja á hann efni. Fyrir miðju, efst á síma er síðan 3.5 mm heyrnartólstengi.

Lumia 950 XL er með Bluetooth 4.1, NFC, FM útvarpi og GPS ásamt flest öllu sem þú átt von á í nýju flagskipi. Lumia 950 XL er með þráðlausu netkorti sem styður 802.11 a/b/g/n/ac og allar helstu dulkóðanir ásamt því að styðja 4G að fullu, eins og flest allir Lumia símar gera reyndar.

 

Rafhlaða og lyklaborð

Ég er orðinn mjög spilltur af einstakri rafhlöðuendingu í Lumia 1520 og iPhone 6 Plus og geri ég því kröfu á að símtækið dugi út daginn og vel það. Í upphafi náði ég 4-12 tíma endingu sem voru mikil vonbrigði og líklega ástæða þess að þessi umfjöllun hefur tekið rúmlega mánuð í vinnslu. Það hafa komið margar uppfærslur á forrit og Windows 10 sem kemur default á Lumia 950 og 950 XL og þessar síðustu tvær Windows 10 uppfærslur hafa gjörbreytt símtækinu.

 

Lumia950XL_1

 

Rafhlöðuending er orðin mjög góð og nú loks á pari við það sem ég er vanur. Lumia 950 XL er með 3340 mAh rafhlöðu sem er gefin upp fyrir:

  • Tal yfir 2G: 25 klst
  • Tal yfir 3G: 19 klst
  • Biðtími: 288 klst
  • Tónlistarafspilun: 75 tíma

Eins og venjulega þegar ég prófa tæki þá er ég ávallt tengdur við WiFi eða 4G og að samstilla 3-4 EAS tölvupóstreikninga ásamt því að taka mikið af myndum, lesa töluvert af bæði heimasíðum og nota Twitter og Facebook slatta yfir daginn.

 

Hér má sjá nokkur ráð sem hjálpa þér að lengja rafhlöðuendinguna.

 

Lumia 950 XL er með innbyggðri þráðlausri hleðslu, einn af kostum við þessa hleðslutækni er að Microsoft byggir áfram (eins og Nokia gerði) á staðlaðri tækni. Sjá má fyrir sér að innan fárra ára verði stofuborðið orðið hleðslustöð fyrir fjarstýringar og snjallsíma (hef reyndar sagt þetta í nokkur ár og ég bíð enn).
Lumia 950 XL er eins og aðrir Windows 10 Mobile símar með fullt Qwerty lyklaborð. Hægt er að hafa lyklaborðið, eins og stýrikerfið í heild sinni, á íslensku sem er gríðarlega vandað.

Flest símtæki sem ég hef prófað á íslensku hafa verið illa þýdd og málfarslega erfið í notkun en svo er ekki með Windows 10 Mobile. Microsoft býr að áralangri reynslu af íslensku Windows og það nýtist vel í Windows 10 Mobile.

Annað tengt lyklaborði og mús en það er nýjung sem kallast Continuum en þá er hægt að tengja símtækið við skjá, lyklaborð, mús, flakkara eða önnur USB tengd jaðartæki. Við munum fjalla sérstaklega um þetta á næstunni en í þessu myndbandi má sjá hvernig þetta virkar.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn á Lumia 950 XL er líklega langbesti alhliða skjárinn sem ég hef séð í snjallsíma, þetta eru stór orð en hann er sannarlega frábær. Þetta er Amoled skjár með ClearBlack tækninni gefur auka dýpt í svarta litinn ásamt því að allir aðrir litir verða líflegir og skarpir.

Skjárinn er eins og fyrr segir 5.7″ stór með Corning Gorilla Glass 4 og styður upplausnin uppá 2560 × 1440 punkta (WQHD eða Wide Quad HD). Þessa upplausn sem er fjórföld 720p upplausn höfum við séð áður í t.d. LG G3, LG G4, Galxy S6 Edge og S6 svo eitthvað sé nefnt.

Skjárinn er því um 518 ppi (Pixel per inch) sem er með því betra á markaðnum í dag. Til samanburðar má nefna að skjárinn í iPhone 6S Plus er aðeins 401 ppi en hann hefur almennt verið talinn mjög skarpur en er þó aðeins með HD upplausn eða 1920 x 1080.

Það var helst við notkun á móti birtu eða í úti í sól sem endurvarp af skjánum truflaði mig en það á við um flesta Gorilla Glass síma. Snertivirkni á skjánum er mjög góð, það er reyndar ekki hægt að nota símann með vettlingum, penna, hníf o.s.frv. en ég sakna þess merkilega lítið enda alltaf sól og blíða á Akureyri.

Nokia og síðan nú Microsoft, hafa fengið verðskuldað lof fyrir myndavélar í símtækjum sem þeir hafa framleitt. Þeir komu t.d. fyrst með myndavélatækni sem þeir kalla PureView sem kom í Symbian síma sem hét PureView 808 en sú myndavél var almennt talin vera bylting í snjallsímamyndavélum. Segja má að Nokia og nú Microsoft hafi verið leiðandi síðan þeir hófu samstarf sitt við Carl Zeiss árið 2005 en Lumia 950 XL er eins og margir aðrir Lumia símar með Carl-Zeiss linsu.

Eftir frábæra myndavél í Lumia 1020 og Lumia 1520 þá reiknaði ég fyrirfram með því að myndavélin í Lumia 950 XL væri frábær og hef ég ekki orðið fyrir vonbrigðum með hana. Get sagt með nokkurri sannfæringu að þetta sé næst besta myndavélin sem ég hef prófað enda auðvelt að færa fyrir því rök að einungis Lumia 1020 sem er með 41MP myndavél sé betri en vélin sem er á Lumia 950 XL.

Þó að þessi símtæki taki frábærar myndir í dagsbirtu þá á þetta sérstaklega við um aukin myndgæði og skarpari myndir í lélegri birtu. Þetta skiptir mig eins og flesta snjallsíma notendur máli þar sem lang flestar myndir eru tækifærismyndir sem eru teknar við krefjandi aðstæður.

 

Lumia950XL_5

 

Myndavélin í Lumia 950 XL er 20MP sem tekur myndir í 4992 x 3744 pixla upplausn. Síminn er með frábærri 6-laga linsu sem tryggir að áhugaljósmyndarar ættu ekki að verða sviknir af myndum sem símtækið tekur. Carl Zeiss Tessar linsan er með 1/2.4“ sensor og er fljótandi (Optical image stabilization eða OIS) sem þýðir með mikilli einföldun að myndir verða mun stöðugri en annars. OIS gerir Lumia 950 XL kleift að hafa ljósopið (f/1.9) lengur opið þegar verið er að taka myndir, sem skilar sér í mun skýrari og skarpari myndum. Þetta sést best þegar birtuskilyrði eru slæm.

Ef notandi vill nota flash þá kemur Lumia 950 XL með þreföldu RGB LED flashi sem hægt er að nota í allt að 3m fjarlægð frá myndefni. RGB flash gerir það að verkum að símtækið getur greint umhverfið áður en mynd er tekin og síðan flash´að í þeim lit sem þarf til að lýsa upp myndefnið. Þessa lýsingu er reyndar hægt að vinna eftir að myndin er tekin sem er mjög magnað.

Myndavélaforritið sem fylgir með Lumia 950 XL heitir núna einfald lega Camera og er sjálfgefna forritið í Windows 10 Mobile. Þetta er gott forrit sem gerir notendanum kleift að stilla með einföldu móti allar helstu stillingar beint áður en mynd er tekin. Fyrir utan venjulegar stillingar sem notendur geta reiknað með þá er einfalt að stilla handvirkt hluti eins og white balance stillingu og velja: Cloudy, Incandescent, Fluorescent, Daylight, Automatic. Einnig er hægt að stilla ljósnæmi á sjálfvirkt eða allan skalan frá ISO 50 og alla leið uppí ISO 3200.

Hægt er að taka myndbönd í upplausn sem skalar frá 1280 x 720p við 24 ramma og alla leið uppí 3840 x 2160p við 30 ramma sem er Ultra HD upplausn.

 

Lumia950XL_4

 

Eins líklega má sjá þá er ég í skýunum með myndavélina í Lumia 950 XL. Carl Zeiss linsan skilar bjartari myndum/video og víðu sjónarhorni sem að skilar aftur af sér skarpari myndum og myndböndum en ég hef séð áður í snjallsímum. Mikið ánægjuefni að Microsoft heldur áfram á sömu braut og Nokia hafa verið á.

Hljóðupptaka í Lumia 950 XL er mjög góð en Microsoft nota áfram fjóra hljóðnema eins og var í sumum Nokia símtækjum. Þessir hljóðnemar styðja við hljóðupptökur og eru einnig til að bæta hefðbundin talgæði. Microsoft notar tvo stefnuvirka hljóðnema á bakhlið og tvo á framhlið sem hugbúnaður notar síðan til að loka út umhverfishljóð og tryggja hljómgæði úr þeirra átt sem notendi er að mynda en Microsoft kallar þessa tækni Rich Recording (eins og Nokia gerði). Símtalsgæðin eru einnig mjög góð en þessir fjórir hljóðnemar vinna saman að því að eyða vind- og umhverfishljóðum úr samtölum (Multimicrophone noise cancellation).

Hátalarinn í Lumia 950 XL skilar þokkalegum hljómi, hvort sem það voru símtöl með hátalara eða við tónlistarafspilun. Hljómurinn er reyndar áberandi grannur og stór galli finnst mér að hátalari er í mono og snýr frá notenda þegar horft er á skjáinn. Hann dugar vél í tilkynningar frá forritum en þar fyrir utan mæli ég með heyrnartólum eða auka hátölurum

Lumia 950 XL er einnig með 5MP víðlinsu myndavél á framhlið sem tekur myndir í allt að 1920 × 1080 (f/2.4) og hentar þvi vel t.d. í sjálfur (selfies) eða myndsímtöl (t.d. Skype).

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Lumia 950 XL er frábært og heilt yfir sú besta sem ég hef prófað á Windows síma. Hann ræður við að spila “allt” það sem ég ætlaði honum hvort sem það voru HD bíómyndir af innra-minni, Youtube video eða aðra vefstrauma. Lumia 950 XL er eins og aðrir Windows 10 Mobile símar með góðum tónlistarspilara og með t.d. Spotify áskrift þá ertu kominn með öflugan tónlistarkost. Einfalt er að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Lumia 950 XL að ráða við allt sem þú gætir vilja notað hann í.

 

Lumia950XL_8

 

Netflix appið fyrir Windows er mjög gott og hentar þessi stóri fallegi 5.7″ skjár mjög vel í raðgláp og chill.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Microsoft Lumia 950 og 950 XL eru fyrstu símtækin sem koma með Windows 10 forhlöðnu á tækinu. Hægt hefur lengi verið að prófa Windows 10 í eldri tækjum með Insider build en þetta eru fyrstu official tækin með Windows 10.

Windows 10 hefur tekið stór stökk frá því ég prófaði það fyrst og er í dag mjög þýtt og þægilegt í notkun. Það var mjög böggað þegar ég fékk símtækið fyrst, forrit voru að frjósa og stýrikerfið líka ásamt því að rafhlöðuending var slæm en með stöðugum uppfærsum á það ekki lengur við. Símtækið er með mjög öflugum vélbúnaði og ræður því léttilega við stýrikerfið, öll virkni er hröð og upplifun jákvæð.

Það er búið að samræma útlit mikið með Windows 10 sem þú þekkir af tölvunni þinni og er því mjög einfalt að finna allar stillingar og forrit. Windows 10 Mobile á þó töluvert í land finnst mér en það er eitthvað við skipulag og virkni sem er að stríða mér. Það er eins og það eigi eftir að klára einhverja heildarhugsun á bakvið kerfið því virkni og staðsetningi stillinga/valkosta er oft furðuleg og handahófskennd.

Það fylgir með góð hugbúnaðarsvíta sem gerir það að verkum að mig vantaði ekki mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Pakkinn með Word, Excel og PowerPoint, One Note, ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, pdf lesara, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv.

 

Lumia950XL_3

 

Office pakkinn gerir notanda kleyft að vinna með Word, Excel og PowerPoint skjöl beint af SharePoint, OneDrive eða af símanum sjálfum. Hægt er að breyta þeim, senda með tölvupósti eða bara vista í skýið án þess að þurfa að kaupa auka hugbúnað. Síðustu mánuði hefur mér þótt þessi ritvinnsla í Office pakkanum frá Microsoft vera betri í iOS eða Android en núna má segja að hún sé á pari ef ekki betri á Windows símtækjum enda allt annað fáranlegt að mínu mati.

Innbyggt er gott leiðsöguforrit sem heitir einfaldlega Maps og er frá Microsoft en það er með sambærilegri virkni og Here Navigation sem við þekkjum af eldri tækjum. Here svítan er fáanleg í Windows Store og mælum við með henni frekar en Maps. Þeir sem hafa notað Maps á Windows 10 tölvu sjá þó að þetta er sama forritið (Universal app) og stillingar og vistaðir punktar samstilla sig milli tölvu og símtækis.

Vafrinn í Windows 10 Mobile heitir Edge og er sami vafri og er á Windows 10 tölvum enda enn eitt Universal appið. Hann er mjög góður og mun betri en Internet Explorer sem er hægt og sígandi að fasast út. Eina sem ég get kvartað er að stundum virðist Edge draga af rafhlöðunni og þá þarf ég að loka opnum flipum (tabs) í vafranum til að laga það en það er mjög sjaldgæft.

 

Lumia950XL_2

 

Ef þig vantar fleiri forrit þá býður Microsoft Store í dag upp hundruði þúsunda forrita sem er jú minna en Google og Apple bjóða uppá en ég verð samt að segja að ég hef fundið forrit fyrir allt sem ég þarf þar. Appleysi hefur verið gagnrýnt á Windows símtækjum og réttilega enda er erfitt að fá öll forrit á þriðja stæðsta stýrikerfið, þetta hefur lítið breyst með komu Windows 10 Mobile en það er samt töluverður meðbyr með Windows og fjölmörg íslensk forrit annað hvort nýkomin eða væntanlega fyrir Windows notendur.

Windows 10 kemur með nýjung sem kallast einfaldlega Windows Hello en með þessu þá er innskráning í tölvur og símtæki sem hafa réttan vélbúnað mun einfaldari. Það er líklega einfaldast að útskýra Windows Hello með þessu uppsetningarmyndbandi frá Microsoft.

 

 

 

Niðurstaða

Það var löngu kominn tími á nýtt tæki í Lumia línuna en Microsoft hafa mjög líklega verið að bíða eftir því að Windows 10 væri tilbúið, það útskýrir allavega biðina.

Símtækið stendur mjög framarlega þegar kemur að samanburði á myndavélasímum en hann tekur það sem Lumia 1020/1520/930 gerðu vel og byggir á því. Flestar tækifærismyndir eru teknar við sæmileg/þokkaleg/léleg birtuskilyrði og því kostur að vera með með símtæki sem ræður vel við þær aðstæður. Lumia 950 XL er alvöru snjallsími sem getur tekið vel nothæfar tækifærismyndir hvort sem það er dagur, kvöld eða nótt.

Windows 10 var ekki mjög stapílt þegar ég fékk símtækið fyrst en nokkrar uppfærslur sem komið hafa síðan hafa gjörbreytt símtækinu. Windows 10 er hraðvirkt og stapílt í dag og hef ég aldrei orðið var við neina hnökra við keyrslu á kerfinu sjálfu eða á forritum eða leikjum sem ég nota. Það vantar enn nokkur stór snjallsíma forrit en það mun vonandi lagast enda töluverður meðbyr með Windows þessa dagana.

Helstu gallar sem ég nefni hér að ofan snúa að útlitinu en það er mitt persónulega mat og líklega ekki allir sammála því. Símtækið og útlit reyndar venst mjög vel og vega kostir vel upp þá galla sem ég hef reynt að finna.

Microsoft Lumia 950 XL er frábært flagskip sem olli mér engum vonbrigðum. Símtækið keyrir á mjög öflugum vélbúnaði og bíður uppá skemmtilegar nýjungar sem heilluðu mig.

 

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira