Heim UmfjöllunUmfjöllun Snjallsímar Nokia Lumia 1020 (uppfært)

Nokia Lumia 1020 (uppfært)

eftir Jón Ólafsson

Uppfært 12.10.2013:   Kafli um rafhlöðu, niðurstaða og einkunn

 

Þegar tilkynnt var um Nokia Lumia 1020 símtæki með 41MP myndavél þá var ég lítið sem ekkert spenntur þar sem mér þykir myndavélin í Lumia 925 vera miklu meira en nóg. Það hefur verið fjallað töluvert um Lumia 925 hér á Lapparanum og fannst mér engu vera hægt við myndavélina að bæta.

Nokia eru ekki sammála því og komu því með Lumia 1020 sem er með 41MP myndavél

Lumia 1020 leysir af hólmi síma sem var kynntur í byrjun árs 2011 og hét Nokia 808 Pureview en sá sími hefur almennt verið talinn “besti myndavélasíminn” á markaðnum en hann var með 41MP myndavél og var um 5 ár í þróun. Sá sími kom reyndar með Symbian stýrikerfi sem var orðið úrelt nokkrum árum áður en 808 kom í sölu. Ég ætla svo sem ekki að fara nánar í útí hann hér en segja má að hann hafi verið æði byltingakenndur á sínum tíma og sé það enn í dag en hér er umfjöllun um hann á Dpreview.

Nokia Lumia 1020 hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu enda nýtt flaggskip frá Nokia og myndavélin á honum í sérflokki. Ég vann þessa umfjöllun ekki einn að þessu sinni heldur þáði ég liðsinnis frá Haraldi Helga sem er með einstaka ljósmyndadellu og mjög kröfuharður SLR áhugaljósmyndari.

Okkur þótti áhugavert að sjá hvort myndavélin í Lumia 1020 standist kröfur ljósmyndarans ásamt því að sjá hvort að hann standi sig líka sem venjulegt símtæki. Það verður áhugavert að sjá hversu miklu ef einhverju af flaggskipstilfinningu síminn tapar við að verða “besti myndavélasíminn á markaðnum” eins og margir vilja meina.

 

Hér má sjá Lumia 1020 afpökkun

 

 

 

Hönnun og vélbúnaður

Nokia Lumia 1020 er glæsilegt símtæki og fær notandi strax það á tilfinningunni að í höndunum hafi hann sterkan og vel smíðaðan síma. Hann er gerður úr Polycarbonate eins og flestir aðrir Lumia símar og segja má að þetta sé plast með premium tilfinningu.

Segja má að Lumia 1020 svipi mjög mikið til Lumia 920 í útliti með þeirri breytingu að á bakhlið stendur linsan á 41MP myndavélinni örlítið útúr bakinu. Við vorum ánægðir með Lumia 920 en okkur þótti hann vera í þyngra lagi og helst til þykkur.

 

Lumia1020_3

 

Lumia 1020 er þó þynnri og léttari en Lumia 920, litlu munar þar sem linsan stendur út úr en Lumia 1020 er um 30gr léttari en Lumia 920 sem er umtalsvert. Lumia 1020 kemur í þremur litum eða svartur, hvítur og gulur.

 

 

Ólíkt t.d. Lumia 520 sem er ódýrasti Lumia síminn þá er skelin vönduð viðkomu eins og fyrr segir og þá leynist líklega engum að þetta er flaggskip Nokia. Síminn er með 4.5″ skjá sem leggst vel í skelina sem umleikur hann en skjárinn er lítillega kúptur til hliðana eins og Lumia 920/925. Allur frágangur milli skjás og skeljar er til fyrirmyndar og greinilega vandað vel til verka.

Takkarnir á hægri hlið eru þrír eins og á öðrum Windows Phone símum, sértakki fyrir myndavél, powertakki ásamt hækka/lækkatakka. Takkarnir eru úr keramik sem gefur til kynna að þeir séu sterkir og rispufrýir. Framhliðin fer nær öll undir skjáinn fyrir utan að yst byrjar skelin sem umleikur símann eins og fyrr segir. Á framhlið eru þrír snertitakkar eins og við þekkjum á öllum Windows Phone símum, bakka, heim og Bing leit. Hliðar og bakhlið eru kúpt sem lætur símtækið liggja vel og örugglega í hendi en bakhlið á símanum er slétt fyrir utan þar sem 41MP myndavélin er.

 

Stærðir

  • Hæð  130.4 mm
  • Þyggt  10.4 mm
  • Breidd  71.4 mm
  • þyngd 158 gr

 

Lumia 1020 er með Dual-Core 1.5GHz Snapdragon S4 örgjörva og 2GB í vinnsluminni sem er það mesta sem komið hefur í Windows Phone síma hingað til. Þessi öflugi örgjörvi og auka vinnsluminni skilar sér í viðbragðsgóðu viðmóti og hef ég aldrei orðið var við hökt í símann, hvort sem er í stýrikerfinu sjálfu, forritum eða í leikjum.

 

Lumia1020_7

 

Við setjum spurningarmerki við aðeins 32GB geymslurými á síma sem er með 41MP myndavél því það samnýtist undir stýrikerfi, ljósmyndir og annað margmiðlunarefni. Þar sem við tengjum símana okkar reglulega við tölvu til að tæma af þeim þá lentum við aldrei í plássleysi á Lumia 1020 en samkvæmt prófunum okkar þá ætti plássið þó að duga til að taka 1500-1700 ljósmyndir

Til viðbótar er Windows Phone beintengt við SkyDrive og þar bætist við ókeypis 7GB í skýinu sem nýtist til að taka afrit af símanum sjálfum eða af ljósmyndum og myndböndum.

Einfalt er að kaupa sér meira Skydrive geymslupláss

  • auka 20GB kosta um 1200 krónur á ári
  • auka 50GB kosta um 3200 krónur á ári
  • auka 100GB kosta um 6400 krónur á ári

Verð miðast við gengi á pundi 04.10.2013

 

Tengimöguleikar

Lumia 1020 er með Micro USB tengi (USB 2.0) neðst á símtæki þannig að einfalt er að tengja símann við tölvu til að sækja eða setja á hann efni. Þetta er kostur þar sem notendur geta notað allar Micro USB snúrur sem þeir eiga fyrir, það er ekkert sérstakt tengi eða millistykki sem þarf. Þetta tengi er sameiginlegt með “öllum” snjallsímum…. öðrum en iPhone.

Efst á síma er einnig 3.5 mm heyrnartólstengi og sleði fyrir SIM kort. Lumia 1020 er með Bluetooth 3.0 (A2DP).

Lumia 1020 er með þráðlausu neti eins og við er að búast sem styður 802.11 a/b/g/n og allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins og: WPA2 (AES/TKIP), WPA, WPA-Personal, WEP, WPA2-Personal, WPA-Enterprise, WPA2-Enterprise, PEAP-MSCHAPv2, EAP-SIM, EAP-AKA

Lumia 1020 er einnig með NFC kubb sem býður meðal annars uppá borganir, samnýtingu gagna, og notkun NFC merkja. Ég nota NFC eingöngu með NFC merkjum og þá helst til að ræsa leiðsögn þegar ég set tækið í vöggu í bílnum.

 

4G kerfa væðingin er komin af stað hjá Íslenskum símfyrirtækjum og verður notast við 800/1800 böndin á Íslandi.

Nokia Lumia 1020 styður því 4G að fullu eins og fjallað er um hér.
Það eru framleiddar tvær LTE týpur af Lumia 1020 og er RM-875 týpann sem þú átt að kaupa fyrir Ísland.

4G – 800 / 900 / 1800 / 2100 / 2600

 

Rafhlaða og lyklaborð

Rafhlöðuendingin er það sem olli okkur hvað mestu vonbrigðum við Lumia 1020 þó svo að hún lagist á hverjum degi. Þó svo að TheVerge og aðrir segjast ná rúmlega sólarhring við “venjulega notkun” þá vorum við í vandræðum með ná heilum vinnudegi án þess að stinga símtækinu í samband.

Rafhlöðuending olli okkur vonbrigðum í upphafi en núna eftir lengri notkun þá er rafhlaðan orðinn á pari við það sem erlendir miðlar segja. TheVerge og reyndar flestir tala um “great batterylife” og rúmlega sólarhrings endingu við “venjulega notkun” og erum við nú sammála því. Við erum alltaf að klára daginn með töluverða hleðslu eftir í lok dags, jafnvel þó svo að við notum myndavélina töluvert.

Nokia Lumia 1020 er með 2000mAh rafhlöðu sem gefin er upp fyrir

  • Tal yfir 2G: 19 tímar
  • Tal yfir 3G: 13 tímar og 20 mínúndur
  • Biðtími: 16 dagar

Það hefur vitanlega áhrif á rafhlöðuendingu að við tökum mjög mikið af ljósmyndum ásamt því að vera ávallt tengdir við WiFi eða 3G og að samstilla 3 EAS tölvupóstreikninga. Léleg ending á fyrstu 1-2 dögum er oft eðlileg meðan símtækið er að index´a gögn notenda en hver sem ástæðan er þá er gott að sjá endingu á pari við væntingar.

Mögulega var eitthvað app uppsett hjá okkur sem olli þessu en við höfum lesið um þetta, mjög góð rafhlöðuending nema þegar myndavélina er mikið notuð. Við munum halda áfram að prófa símtækið og uppfærum þennan hluta ef niðurstaða okkar breytist.

 

Lumia1020_1

 

Ef við notuðum myndavélina mikið (+100 myndir á einu bretti) þá hitnaði síminn lítillega og það dró nokkuð ört á rafhlöðuna sem telja má mjög eðlilegt. Hér má sjá nokkur ráð sem lengja rafhlöðuendinguna .

Lumia 1020 er ekki með innbyggðri þráðlausri hleðslu eins og t.d. Lumia 920 og hefur það sitt að segja með hversu þynnri og léttari hann er. Það er hægt að kaupa hlíf fyrir Lumia 1020 sem er með þráðlausri hleðslu. Við það verður hann svipaður að þykkt og þyngd og Lumia 920.

Góða við þessa tækni er að þráðlausa hleðslan í Nokia símum byggir á staðlaðri tækni svo hægt verður að hlaða símann á fleiri stöðum þegar tæknin verður útbreiddari en sjá má fyrir sér að innan fárra ára verði stofuborðið orðið hleðslustöð fyrir fjarstýringar og snjallsíma.

Lyklaborðið er ekki enn komið með íslensku útliti en allir íslensku stafirnir eru engu að síður til staðar. Sem dæmi til að skrifa Þ þá er T haldið inni, til að skrifa Ð þá er D haldið inni o.s.frv.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn á Lumia 1020 er gullfallegur Amoled skjár og vakti hann ávallt athygli þegar við sýndum einhverjum símtækið. Skjárinn er með þeim skarpari sem við höfum séð en ClearBlack tæknin gefur auka dýpt í svarta litinn ásamt því að allir litir verða líflegir og skarpir. Skjárinn er 4.5″ stór með Corning Gorilla Glass 3 sem styður upplausnin uppá 1280×768 punkta (WXGA) og er hann því 15:9.

Punktaþéttleikiinn er 332ppi sem er með því hæsta sem þekkist í snjallsímum og aðeins meira en Apple notar í iPhone 5 símann sinn. Nokia eyddi miklum tíma og metnaði í skjárinn er notar tækni sem kallast PuremotionHD+ eins í Lumia 925. Með PuremotionHD+ hefur Nokia tekist helminga þann tíma sem tekur að skipta um lit á punktum en þannig hefur Nokia tekist að tryggja með þessu skjá sem ræður við að lágmarki 60 FPS í allri afspilun/myndvinnslu.

Snertivirkni er mjög góð í Lumia 1020 og sú sama og í 920/925 en Nokia segir að þú getir notar símann með vettlingum, penna, hníf o.s.frv. Ég prófaði að nota Lumia 925 með vettlingum og virkaði það mjög vel.

Myndavél

Nokia hefur náð mjög langt með myndavélar í snjalltækjum og er myndavélin í Nokia Lumia 1020 að flestra mati sú allra besta á markaðnum í dag.

 

Nokia hefur þróað myndavélatækni sem þeir kalla PureView sem fyrst kom í Nokia PureView 808 en eins og fyrr segir var sú myndavél er almennt talin vera bylting í snjallsímamyndavélum. Þegar Nokia tilkynnti að Lumia 920 notaði PureView þá var ástæða til að gleðjast en þessi tækni er líka í Lumia 925 og nú líka í Lumia 1020. Það má segja að myndavélin sé byltingarkennd og eru myndgæði í dagsbirtu einstök ásamt því að myndir í lélegri birtu eru enn betri en við höfum áður séð í símtækjum.

 

Hér má sjá myndir sem við tókum á Nokia Lumia 1020

 

Lumia1020_2

 

Myndavélin í Lumia 1020 sem er 41MP (38MP effective með 1/1.5″ sensor size) sem tekur myndir í 7152 x 5368 pixla upplausn. Síminn er með frábærri linsu sem tryggir að áhugaljósmyndarar ættu ekki að verða sviknir af myndum sem símtækið tekur.

Carl Zeiss Tessar linsan er “fljótandi” (Optical image stabilization eða OIS hér eftir) sem þýðir með mikilli einföldun að myndir verða mun stöðugri heldur en þekkst hefur hingað til í snjallsímum. OIS gerir Lumia 1020 kleift að hafa ljósopið (f/2.2) lengur opið þegar verið er að taka myndir, sem skilar sér í mun bjartari, skýrari og skarpari myndum. Þetta sést best þegar birtuskilyrði eru slæm en ef notandi vill nota flash þá er Lumia 1020 með Xenon flash sem hægt er að nota í allt að 4m fjarlægð frá myndefni.

 

Lumia1020_4

 

Gæðamunurinn milli Lumia 1020 og annara myndavélasíma (sérstaklega við  léleg skilyrði) er mjög mikill mikill og fær myndavélin hæstu einkunn frá mér. Nokia Lumia 925 sem er með frábæra myndavél bliknar í samanburði við Lumia 1020.

Eins og komið hefur fram tekur Lumia 1020 frábærar ljósmyndir en það er í videóupptöku sem OIS fær að njóta sín til fulls. Þar sem linsan skilar stöðugri myndum þá skilar hún af sér mjög skýrri og góðri videoupptöku. Hægt er að taka upp í 1080p upplausn (@30 rammar á sekúndu) með x4 stafrænum aðdrætti og möguleika á myndabandlýsingu.

 

Lumia1020_5

 

Venjulega þarftu að einbeita þér að því að halda myndavélasímum alveg stöðugum til að ná góðum videóum en þetta þarf ekki þegar Lumia 1020 er notaður. Carl Zeiss Tessar linsan skilar bjartari video og víðu sjónarhorni sem að skilar aftur af sér skarpari myndum og myndböndum en ég hef séð áður í snjallsímum.

Nokia hafa uppfært myndavélahugbúnaðin með nokkrum skemmtilegum auka öppum en helst ber að nefna Nokia Pro Cam og Nokia Smart Cam.

 

 

Viðbót vegna atvinnuljósmyndara

Þó svo að Nokia Lumia 1020 komi seint til með að koma í staðinn fyrir SLR myndavélina þá er símtækið skemmtileg viðbót við “vopnasafnið”. Með því að vera með Lumia 1020 í vasanum þá ertu með snjallsíma með öllum sínum kostum ásamt því að hafa tækifærisvél sem bíður uppá allra bestu myndir sem mögulegar eru í símtæki á markaðnum í dag.

 

 

Til að styðja við hljóðupptökur og til að bæta hefðbundin talgæði notar Nokia tvo hljóðnema sem skilar sér í góðum gæðum á hljóðupptökum. Símtalsgæðin eru mjög góð og þessir tveir hljóðnemar vinna saman að því að eyða vind- og umhverfishljóðum úr samtölum (Multimicrophone noise cancellation). Þó að hátalarar í t.d. Lumia 920 séu mun betri en í Lumia 1020 að mínu mati þá skiluðu þeir ágætis hljómi hvort sem var við símtöl með hátalara eða við tónlistarafspilun.

Lumia 1020 er einnig með 1.2MP HD myndavél á framhlið sem tekur myndir í allt að 1280×960 (f/2.4) og hentar þvi vel t.d. í Snapchat (djók) eða myndsímtöl eins og t.d. Skype.

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Lumia 1020 er mjög góð og ræður hann við að spila og gera “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var bíómynd af innra-minni, Youtube video eða aðra vefstrauma.

Lumia 1020 er eins og aðrir Windows Phone símar með góðum tónlistarspilara og með XBOX music (eða Spotify) áskrift þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Lumia 1020 að ráða við allt sem þú gætir vilja notað hann í annað en að taka ljósmyndir.

Ég er samt enn að takast á við þá ákvörðun Nokia að hafa símtæki sem þetta ekki með rauf fyrir auka minniskort. Sem alvöru ljósmyndavél þá hefði ég óskað eftir 64GB geymslurými og Micro-SD rauf þannig að ljósmyndir og annað margmiðlunarefni gæti jafnvel verið sér á stóru SD korti.

 

Hugbúnaður og samvirkni

Allir Windows Phone 8 símar koma með glæsilegri hugbúnaðarsvítu sem gerir það að verkum að það ætti ekki að vanta mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Pakkinn með Word, Excel og PowerPoint, One Note, Here svítan ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, pdf lesara, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv.

Office pakkinn gerir notanda kleift að vinna með Word, Excel og PowerPoint skjöl beint af SharePoint, SkyDrive eða af símanum sjálfum. Hægt er að breyta þeim, senda með tölvupósti eða bara vista í skýið án þess að þurfa að kaupa auka hugbúnað. Eins og ég hef oft sagt þá hef ég aldrei kynnst svona góðri skjalavinnslu á snjallsíma áður. Vafrinn í Windows Phone 8 er mjög góður og að okkar mati einn sá besti af þeim vöfrum sem fylgja með snjallsímum í dag.

Ef þig vantar fleiri forrit þá býður Microsoft Store í dag (07.07.2013) upp á rúmlega 160 þúsund forrit sem er jú minna en Google og Apple bjóða uppá en ég verð samt að segja að ég fann forrit fyrir allt sem mig vantaði.

Flestir nota Facebook, Twitter og Instagram og ef eitthvað vantar til viðbótar þá er hér ágætislisti yfir forrit sem Íslenskir WP notendur nota.

Hér má lesa um Nokia Here leiðsöguforrit sem fylgja ókeypis með öllum Nokia Lumia símtækjum

 

Niðurstaða

Nokia Lumia línan hefur vaxið og þroskast hratt síðustu 12 mánuði en hún spanar í dag allan snjallsímaskalan frá ódýrum símum, yfir í alvöru hetjutæki og er almennt að verða fágaðri og betri. Nokia Lumia 1020 er sannarlega hetjutæki sem vert er að skoða betur, sérstaklega ef þú ert að leita að alvöru myndavél til að taka tækifærismyndir eða vilt losna við að ferðast með heimilismyndavélina.

Myndavélin í Lumia 1020 er að okkar mati mun betri en flestar heimilismyndavélar sem fólk notar í dag þannig að ef þig vantar góðan snjallsíma með einstakri myndavél þá þarftu að skoða þennan betur.

 

 

Það eru tvö atriði sem vöktu spurningar hjá okkur en það er rafhlöðuending og að það sé engin rauf fyrir minniskort. Rafhlöðuendingin er mögulega vegna þess að við vorum stanslaust að taka myndir en vöntun á rauf fyrir minniskort er sannarlega vonbrigði. Þetta eru kannski ekki stór atriði en ekki hægt að sleppa því að minnast á þau engu að síður.

Að okkar mati leysir Lumia 1020 forvera sinn Pureview 808 vel af hólmi með þessu hetjutæki. Stærsti galli 808 var og er sannarlega Symbian stýrikerfið sem stenst enganvegin samanburð við Windows Phone, iOS eða Android.

Við teljum Nokia Lumia 1020 vera í algerum sérflokki þegar kemur að samanburði á myndavélasímum en hann tekur það sem Pureview 808 og Lumia 925/920 gera vel og gerir það enn betur. Lumia 1020 er alvöru snjallsími sem getur tekið frábærar tækifærismyndir hvort sem það er dagur, kvöld eða nótt.

Windows Phone 8 stýrikerfið er mjög stabílt og hraðvirkt á Lumia 1020 og hef ég aldrei orðið var við neina hnökra við keyrslu á kerfinu sjálfu, á forritum eða leikjum sem ég nota. Windows Phone byggir á lifandi reitum sem gerir símann persónulegan og þægilegan að mínu mati.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira