Þann 4. febrúar síðastliðinn greindi Engadget frá því að Under Armour hafi sölsað undir sig tvö snjallforrit, Endomondo og MyfitnessPal, en fyrir átti Under Armour lítið ámóta forrit með HTC
Samkvæmt heimildum Engadget greiddu Under Armour litlar 85 milljónir bandaríkjadala fyrir Endomodo í lok janúar. Forritið heldur utan um hreyfingu notenda sinna hvort sem það eru hlaup, ganga, hjólreiðar eða annarskonar hreyfing sem hægt er að mæla.
Under Armor létu sér ekki nægja að ná Endomondo á sitt band heldur tóku þeir einnig MyFitnessPal undir sig fyrir litlar 485 milljónir bandaríkjadala.
Samanlagt hafa þessi tvö snjallsímaforrit því um 120 milljóna notenda víðsvegar um heiminn á öllum stýrikerfum.
Sæktu Endomondo: Windows, iOS og Android
Sæktu MyfitnessPal: Windows, iOS og Android
Sæktu MapMyFitness: Windows, iOS og Android