Microsoft tilkynnti fyrir skemmstu að framleiðsla á Nokia farsímum eins og við þekkjum hana í dag verður hætt þetta hljómar dramatískt en er það nú kannski ekki alveg.
Nokia vörumerkið verður notað áfram á einföldum símum sem flokkast ekki sem snjallsímar meðan snjallsímarnir verða hér eftir framleiddir sem Microsoft Lumia í staðinn fyrir Nokia Lumia
Eins og margir vita keypti Microsoft farsímahluta fyrirtækisins í apríl stíðastliðnum fyrir 7,2 milljarða Bandaríkjadala.
Microsoft birti í gær afkomutölur fyrir síðasta fjárhagsár og þó svo að kaupinn á Nokia hafi togað í þá er margt gott að finna þar en sem dæmi má nefna að Microsoft (Nokia) seldi 9.3 millijónir Lumia snjallsíma á nýliðnum fjórðungi sem er 5.6% aukning frá síðasta ári
Hvernig lýst ykkur á Microsoft Lumia?