Svo virðist vera að nýju Surface vélarnar frá tæknirisanum Microsoft séu að selja vel. Samkvæmt frétt á Mashable þá er Surface 2 sem fjallað er um hér og Surface Pro 2 sem er efst á jólagjafalistanum okkar uppselt víðsvegar og virðist ekki vera um hefðbundið markaðstrix að ræða.
Oft stýra framleiðendur framboði á vörunni til þess að hún virðist vera vinsælli en ella en fréttamaður Mashable hringdi í nokkrar stórverslanir til að athuga hvernig staðan sé.
- Surface.com – verslun Microsoft
Surface 2 uppseld í öllum stærðum
Surface Pro 2 uppseld í öllum stærðum - Walmart
Surface 2 uppseld í öllum stærðum
Surface Pro 2 uppseld í öllum stærðum - Best Buy
Surface 2 uppseld í öllum stærðum
Surface Pro 2 uppseld í öllum stærðum
Samkvæmt heimasíðu ætti hún að vera til í einhverjum verslunum en fréttamaður hringdi í Best Buy verslanir í New York, Portland, Oregon Austin (Texas) og allsstaðar var sama sagan. Hvorug vélin var til í neinni stærð.
Fyrsta sem mig grunaði var að Microsoft hefði einfaldlega framleitt mjög fáar vélar vegna þess hversu illa Surface 1 seldist í upphafi en svo virðist ekki vera. Samkvæmt sölumanni þá eru vélarnar bara mjög vinsælar (extremely popular).
Heimild og mynd: Mashable