Nú þegar styttist í jólinn vilja líklega margir velja sér gott jólalag sem hringitón, svona er það gert á Windows Phone símtækjum.
Það er hægt að sækja smáforrit í Store til að gera þetta en mér finnst einfaldast að gera þetta í gegnum tölvuna og miða þessar leiðbeiningar við það.
Fyrst skaltu tengja símtækið við tölvu og loka öllu sem er uppi eða kemur upp við að tengja símtækið.
Opnaðu Computer (My Computer) og smelltu á símtáknið sem er svipað þessu en athugaðu að það þarf ekki að standa Windows Phone hjá þér ef þú hefur skrírt símtækið einhvað annað.
Þar næst skaltu kafa niður í möppu sem heitir \Windows Phone\Phone\Ringtones
Þar næst dregur þú einfaldlega lagið sem þú vilt færa á símann yfir í Ringtones möppuna.
Þá er lagið komið á símtækið og þarf því næsta bara að velja lagið sem hringitón en af Heimaskjá, strúka til vinstri og finna Settings > Ringtones+Sounds
Þegar þangað er komið er smellt á Ringtone og þar úr lista er hægt að velja jólalagið sem þú varst að bæta við hér að ofan.