Það er mjög margir sem nota VPN til að tengast vinnustaðnum sínum og komast þannig í sameiginleg netdrif og aðra þjónustu sem er bara í boði á vinnustað eða yfir VPN. Það er hægt að nota forrit til að stýra tengingunni eða bara innbyggða virkni sem er í Windows 8.x og ætla ég að renna lauslega í gegnum uppsetningu á því.
Þetta er tiltölulega einfalt ferli og virkar bæði á venjulegum Windows 8 vélum ásamt því að virka á Windows RT vélum, t.d. Surface RT og nýju Surface 2 en þetta er prófað á Surface 2.
Byrjum á því að smella á til að komast á heimasjá og byrja að skrifa Network and Sharing Center (þarft ekki að opna Charm bar sérstaklega)
Þar smellir er smellt á Set up a new connection or network
Næst er Connect to a Workplace valið og smellt á Next
Mögulega kemur aukaskref ef notandi er með t.d. 3G modem líka uppsett en yfirleitt er valið NO hér og smellt á Next
Þar sem við notum núverandi internet tengingu til að tengjast vinnustað er einfaldlega smellt á Use my Internet connection (VPN)
Hér þarf notendi að stimpla inn IP tölu sem átti að vera einfallt að útvega frá tölvudeild, þetta er sem sagt IP talan á þeim stað sem tölvan reynir að tengjast við. Þegar allt er komið inn samkvæmt mynd þá er smellt á Create.
Vitanlega eru vinnustaðir með mismunandi uppsetningu á endapunktum og ef þetta virkar ekki þá ættu þeir að eiga létt með að stilla routerinn þannig að tenging takist. Ég prófaði þetta á móti þremur stöðum og virkuðu tveir strax en ég þurti að stilla Cisco router sérstaklega að fá innbyggt VPN í Windows 8/RT til að virka.