Haraldur Helgi er mættur aftur með afpökkunar myndband og núna með sérlegan aðstoðstoðarmann sem heitir Emanuel.
Lapparinn er kominn með Nokia Lumia 1020 í prófanir en það er mjög margir sem eru æði spenntir fyrir honum. Það voru vinir okkur í emobi sem lánuðu honum þennan og því um að gera að koma með eitt stykki afpökkunar (unboxing) myndband.
Halli heldur áfram að fara ótroðnar slóðir í myndbandsgerð og á þetta líklega eftir að enda í stuttmynd einn góðan veðurdag.
Að vanda verður afpökkunin með íslensku þema en um tónlistina að þessu sinni sjá snillingarnir í Subteareean með lag… sem ég man ekki hvað heitir.