Við hér á Lappara fengum Xiaomi Mi Mix 2 lánaðan frá mii.is í síðustu viku. Ég hlakkaði mikið til að fá að prófa í fyrsta skipti Xiaomi síma en þetta merki er að miklu leiti óþekkt á Íslandi þrátt fyrir að vera gríðarstórt á heimsvísu.
Hér eru helstu atriði um Mi Mix 2:
- Kubbasett: Qualcomm MSM8998 Snapdragon 835
- CPU: Octa-core (4×2.45 GHz Kryo & 4×1.9 GHz Kryo)
- GPU: Adreno 540
- Skjár: 5.99″ IPS LCD skjár með 1080 x 2160 upplausn (403ppi)
- Minni: 6GB RAM
- Geymslurými; 64GB ROM
- microSD rauf: Nei
- Myndavélar: 12MP f/2.0 með 4-axis optical stabilization sem dregur úr titringi og hristing.
- Flash: tvöfalt Led
- Sjálfuvél: 5MP (f2, 1080p)
- Rafhlaða: 3,400mAh (ekki removable)
- Stýrikerfi: Android 7.1.1 Nougat
- Stærðir: 151.8mm x 75.5mm x 7.7mm
- Þyngd: 185g
Símkerfi: LTE / 3G / 2G / GSM – Rauf fyrir 2 sim kort (t.d. vinnu- og persónulegt SIM). - Tengimöguleikar: Wi-Fi 802.11 a/b/g/n/ac / NFC / Bluetooth 5
- Litir: Svartur/Hvítur
Fyrstu kynni af símanum eru mjög góð, síminn virkar snarpur og skjárinn er mjög skemmtilegur. Tækið fellur vel í hendi og fann ég ekki fyrir neinu óþægilegu við símann. Öll almenn notkun fyrstu dagana hefur verið mjög jákvæð.
Tækið er búið að vera í notkun í dálítinn tíma núna þannig að það er ekki langt í fulla umfjöllun hér á Lappara en hér má sjá afpökkun á Mi Mix 2.