Við hér á Lappari.com höfum nú verið með Galaxy S7 og Galaxy S7 edge í prófunum síðustu vikurnar og því komin ágæt tilfinning fyrir tækinu sjálfu.
Það styttist því sannarlega í umfjöllun okkar en segja má að fyrstu kynni séu jákvæð, símtækið er nokkuð snoturt og tækið fer ágætlega vel í hendi. Galaxy S7 virðist sterklegur og vel hannaður þó hann sé ekki alveg jafn fallegur og Galaxy S7 edge sannarlega er.
Galaxy S7 er vel búinn vélbúnaðarlega og nokkuð á pari með stóra bróðir sínum edge. Símtækið er með öllu þessu helsta sem vænta má úr flaggskipi frá Samsung. Hann er mjög sprækur og vottar ekki fyrir neinu hiki í stýrikerfi eða forritum. Myndavélin er mjög góð við flest skilyrði.
- Kubbasett: Qualcomm MSM8996 Snapdragon 820 // Exynos 8890 Octa
- Örgjafar: Dual-Core 1.15 GHz + Dual-Core 1.6 GHz + Quad-Core 2.3 GHz
- Skjár: 5.1″ Amoled skjár með 1440 x 2560 upplausn (577ppi)
- Minni: 4GB LPDDR4 RAM
- Geymslurými; 32/64GB UFS ROM
- microSD rauf stem styður allt að 200GB kort
- Myndavélar: Standard 12MP f/1.7 með 1/2.6″ sensor og sjálfuvél sem er 5MP
- Rafhlaða: 3,000mAh
- Stýrikerfi: Android 6.0 Marshmallow
- Stærðir: 142.4mm x 69.6mm x 7.9mm
- Þyngd: 152g
- Símkerfi: LTE / 3G / 2G
- Tengimöguleikar: Wi-Fi 802.11 a, b, g, n, ac / NFC / Bluetooth 4.2
- Litir: Silfur / Hvítur / Gull / Svartur
- IP68 — vatnsheldur í allt að 1,5m í 30 mín
Við höldum prófunum áfram og birtum síðan ýtarlega umfjöllun á næstu dögum.