Ég er með eina gamla Windows spjaldtölvu sem ég nota slatta í allskonar afþreyingu, horfa á YouTube, Netflix o.s.frv. Vélin kom með Windows 10 en ég vill hafa Windows 11 á henni enda “snertivænna” en Windows 10.
Ég gat þetta í byrjun sem því að skrá mig inn sem Windows Insider og uppfæra í Windows 11, en það virkaði ekki lengur á þessari vél, hún var föstu á gömlu Insider build
Hér er allavega leið sem ég notaði til að uppfæra úr Windows 10 í Windows 11 (útgáfu 21H2).
- Byrja á því að búa til möppu á desktop sem heitir Win11
- Keyrðu Windows 11 Media Creation tól til að sækja ISO á vélina sem þú vilt uppfæra.
- Tví smella síðan á ISO sem sótt var í skrefi 2, til að mounta ISO (sést í My Computer).
- Velja allt (ctrl-a) sem var í ISO (kemur sem DVD drif í My Computer) og afrita yfir í Win11 möppuna sem þú gerðir í skrefi 1.
- Opna möppuna á desktop og þar í Win11\sources og finna skrá sem heitir Appraiserres.dll
- Eyddu Appraiserres.dll og keyrðu síðan Windows 11 setup beint úr Win11 möppunni.
Þá fór ég í gegnum hefðbundna uppsetningu á Windows þar sem ég gat valið hvort ég geymdi eða eyddi gögnum o.s.frv.
.
.
Uppfærsla úr Windows 11 21H2 í 22H2
Allt gekk vel á þessari vél í nokkra mánuði, hún fékk allar uppfærslur frá Microsoft…… eða segjum kannski næstum því allar.
Ég lenti nefnilega í smá brasi að uppfæra þessi vél þegar 22H2 uppfærsla á Windows 11 kom. Hún keyrði sem sagt Windows 11 21H2, en uppfærsla í 22H2 var ekki að skila sér með Windows Update eins og gerðist með aðrar Windows 11 vélar í kringum mig.
Þegar ég sótti nýtt ISO með Media Creation Tool fyrir 22H2 þá kvartaði uppsetningin yfir því að örgjörvi væri ekki studdur.
Smá skellur, sér í lagi þar sem þessi skref hér að ofan með að eyða út sources\Appraiserres.dll virkuðu ekki.
Eftir smá BING leit þá prófaði ég eftir farandi sem virkaði.
Opnaði RegEdit á vélinni og fara í HKEY_LOCAL_MACHINE\SYSTEM\Setup\ og hægri smella á Setup og velja New Key sem þú skýrir “LabConfig“
Þá verður sem sagt til vísun sem heitir “HKEY_LOCAL_MACHINE\SYSTEM\Setup\LabConfig“
Þar undir gerði ég nýtt DWORD (32-bit) Value fyrir þessi 5 gildi en líklega hefði verið nóg að gera bara fyrir BypassCPUCheck í mínu tilfelli
“BypassTPMCheck” =00000001
“BypassSecureBootCheck” =00000001
“BypassRAMCheck” =00000001
“BypassStorageCheck” =00000001
“BypassCPUCheck” =00000001
Síðan endurræsti ég vélina og tvísmellti síðan á nýja 22H2 ISO skránna til að mounta hann í My Computer. Þar næst keyrði ég setup skrána en núna fór uppsetningin í gang. Vélin uppfærði sig í Windows 11 22H2, hjá mér án þess að eyða gögnum eða stillingum frá 21H2 uppsetningunni.