3K
Það ríkir talsverð eftirvænting í símaheiminum eftir Nokia 8 en það vill svo skemmtilega til að við hjá Lappari.com eru komin með prufueintak í hendurnar til skoðunar.
Fyrstu kynni eru talsvert jákvæð og í raun hægt að segja að þegar síminn er handleikinn og notaður að þá eru væntingar okkar framar okkar bestu vonum.
Allt í símanum virðist vera fyrsta flokks hvort sem það er vélbúnaðurinn sjálfur, hönnunin eða virkni Android-stýrikerfisins í þessu umhverfi sem Nokia 8 bíður upp á.
Hér fyrir neðan má svo sjá helstu eiginleika símans:
- Símkerfisvirkni; GSM / HSPA / LTE. 4G á 700/800/850/900/1800/2100/2300 og 2600 MHz
- Skjár; 5,3 tommur, IPS LCD, 16M litir, 1440 x 2560 díla upplausn (554 PPD), Corning Gorilla Glass 5
- Örgjörvi; Qualcomm MSM8987 Snapdragon 835, 1,4 GHZ áttkjarna Kryo 2,5 og 1,8 GHz með Adreno 540-skjástýringu
- Minni; 4GB vinnsluminni, 64GB geymsluminni ásamt microSD-kortarauf sem styður allt að 256GB
- Myndavél; Dual 13 MP Carl Zeiss, DUAL LED-flass með autofocus. Selfie-myndavél; 13MP með autofocus. Myndskeiðsupptaka í 4K@30FPS með Nokia OZO Audio.
- Aðrir þættir; FM-útvarp, Bluetooth 5.0, GPS og Wifi með 801.11 b/g/n
- Stærðir; 151.5 x 73,7 x 7,9 mm. Þyngd; 160 gr.
- IP54-vottun