Heim Ýmislegt LG G6 – Fyrstu kynni

LG G6 – Fyrstu kynni

eftir Jón Ólafsson

Við hér á Lappari.com höfum nú verið með LG G6 í prófunum í tæpa viku. Það má því segja að við séum komin með ágæta tilfinningu fyrir tækinu og erum við reyndar langt komin í prófunum okkar. Það styttist því í umfjöllun okkar.

Fyrstu kynni af tækinu eru mjög jákvæð, símtækið er gullfallegt og þessi stærð fer vel í hendi. Nýji LG G6 virðist almennt sterklegur og vel hannað símtæki.

LG G6 er vel búinn vélbúnaðarlega og með öllu þessu helsta sem vænta má úr flaggskipi. Hann er mjög sprækur og vottar ekki fyrir neinu hiki í stýrikerfi eða forritum. Myndavélin er einn af aðalstyrkleikum símans en hún er frábær við flest skilyrði.

 

Hér eru helstu atriði:

  • Kubbasett: Qualcomm MSM8996 Snapdragon 821
  • CPU: Quad-core (2×2.35 GHz Kryo & 2×1.6 GHz Kryo)
  • GPU: Adreno 530
  • Skjár: 5.7″ IPS skjár með 1440 x 2880 upplausn (564ppi)
  • Minni: 4GB RAM
  • Geymslurými; 32/64GB ROM
  • microSD rauf sem styður allt að 256GB kort
  • Myndavélar: 1) 13MP f/1.8 og vél 2) 13MP f/2.4
  • Flash: tvöfalt
  • Sjálfuvél sem er 5MP (f2.2, 1080p)
  • Rafhlaða: 3,300mAh (ekki removable)
  • Stýrikerfi: Android 7.0 Nougat
  • Stærðir: 148.9mm x 71.9mm x 7.9mm
  • Þyngd: 163g
  • Símkerfi: LTE / 3G / 2G / GSM
  • Tengimöguleikar: Wi-Fi 802.11 a, b, g, n, ac / NFC / Bluetooth 4.2
  • Litir: Hvítur, svartur og Platinum
  • IP68 — vatnsheldur í allt að 1,5m í 30 mín

 

Við höldum prófunum áfram og birtum síðan ítarlega umfjöllun á næstu dögum.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira