2.5K
Gleðilegt nýtt nördaár, kæru Lapparar.
Nú er komið að síðasta kassa ársins af ránsfengnum frá Loot Crate. Einnig er þetta síðasti kassinn af þessari tegund í bili, en það kemur annar ránsfengur í staðin. Þá mun berast kassi með þema sem er meira tengt tölvuleikjum. En nóg um það.
Kassinn í desember var með byltingarkennt þema, sem innhélt meðal annars hakkaralegan bol frá Hr. Vélmenni, pop kúltúr dótakalla listabók og krúttlegasta leigumorðingja heimsins.