Hið óhugsanlega hefur gerst; BlackBerry hefur formlega kynnt til sögunnar nýjasta flaggskipið sitt í símaheiminum og keyrir símtækið á Android-stýrikerfinu.
Forstjóri BlackBerry, John Chen, kynnti nýjasta flaggskip BlackBerry á blaðamannafundi í dag. Síminn, sem nefnist BlackBerry Priv, er sleðasími og keyrir síminn á Android-stýrikerfinu ásamt því að vera með allt það besta frá BlackBerry þegar það kemur að öryggi og tryggum tölvupóstsamskiptum. Chen lét eftir sér hafa að BlackBerry Priv væri öruggasti Android-síminn á markaðnum í dag en lengi vel ríghélt BlackBerry í sitt eigið stýrikerfi einmitt með einum af sínum helstu rökum að þá væri öryggi notenda gulltryggt.
Android-stýrikerfið hefur ekki farið varhluta að gagnrýni undanfarin ár vegna öryggisleysis en þetta stærsta stýrikerfi á snjalltækjamarkaðnum í dag hefur einmitt náð þeirri yfirburðarstöðu af því stýrikerfið er opið og aðgengilegt öllum sem hafa annaðhvort áhuga á því að nota það í símtækjunum sínum eða þróa og hanna hugbúnað fyrir það.
Það er því nokkuð djörf yfirlýsing frá forstjóra BlackBerry að halda því fram að þetta sé öruggasti Android-síminn á markaðnum í dag en þar sem BlackBerry hefur verið þekkt fyrir gagnaöryggi um árabil þá má jafnvel segja að ákveðin vatnaskil séu þá að eiga sér stað varðandi Android-stýrikerfið og öryggisumræðuna í kringum það.
Chen sagði jafnframt að hann væri sannfærður um að BlackBerry ætti bjarta framtíð fyrir sér, þrátt fyrir 47% tekjutap milli ára. Hinsvegar þá er áfram aukning fjórða ársfjórðunginn í röð í nýskráningu notenda hjá BlackBerry og því verður áhugavert að sjá hvernig þeim muni ganga nú þegar þeir eru komnir um borð í Android-lestina.
Þrátt fyrir þessi vatnaskil þá hefur BlackBerry gefið það út að fyrirtækið muni áfram styðja við og styrkja BlackBerry 10-stýrikerfið sem hefur verið í notkun á snjalltækjum þeirra undanfarin ár og undirstrika jafnframt að til að tryggja hámarksöryggi þá er BlackBerry 10 enn sem komið er besta leiðin til þess.
Ekki fylgir sögunni hver eiginleikalýsingin er á BlackBerry Priv en staðfest hefur þó verið að símtækið muni koma í sölu fyrir lok þessa árs.
Heimild: Mobile World Live