Sögusagnir um að Windows 9 betur þekkt undir dulnefninu „Threshold“ eru farnar að líta dagsins ljós, því sagt er að Microsoft muni halda kynningu í tengslum við það þann 30 September næstkomandi. Microsoft munu gefa út svokallað „preview eintak“ eða sýnishornseintak af Windows 9 fljótlega eftir kynninguna.
Að margra mati hefur Windows 8/8.1 ekki slegið í gegn hjá PC notendum og var sem dæmi fyrst í ágúst að taka fram úr Windows XP sem Microsoft hætti að styðja í apríl.
Þó nokkrir hlutir hafa lekið á netið sem gefa til kynna hvað Window 9 mun innihalda en þar á meðal munu þeir endurvekja Start Menu flipan. Það er samt ljóst í meðfylgjast myndbandi að hann verður þó í endurbættri útgáfu.
Cortana mun verða partur af Windows 9 en Cortana er persónulegur stafrænn þjónn sem kynntur var til sögunar í apríl seinastliðinn. Cortana var kynnt þegar Microsoft kynntu Windows Phone 8.1 uppfærsluna sem flestir íslenskir Windows Phone notendur ættu að vera búnir að fá í Lumia símana sína (ATH Cortana er eins og er ekki aðgengilegt á Íslensku).
Sagan á götunni er að Windows 9 verði ókeypis fyrir Windows 7, 8, 8.1 notendur sem er góð þróun ef satt er.