Heim ÝmislegtAndroid Fréttatilkynning – 2know

Fréttatilkynning – 2know

eftir Jón Ólafsson

Eins og hefur verið greint frá áður þá er nýlega kominn á markað nýr íslenskur leikur sem heitir 2know. Við á Lappari.com fengum að vera með í prófunum þegar leikurinn var í þróunn og mælum með að þú prófir hann.

Hér er fréttatilkynning vegna hans sem birtist hér að neðan.

 

—-

 

2know fréttatilkynning
6. desember 2013

 

Akureyrska nýsköpunarfyrirtækið Appia ehf. hefur hleypt af stokkunum nýjum spurningaleik fyrir snjallsíma sem nefnist 2know. Leikurinn gengur út á að spila spurningaleiki, búa til eigin spurningaleiki, með eða án mynda, og deila þeim leikjum með vinum eða öllum heiminum. Í leiknum verður einnig hægt að keppa um verðlaun í spurningaleikjum frá fyrirtækjum. Því er hægt að nota leikinn til að vinna til verðlauna, fræðast eða brjóta upp dautt partý með skemmtilegum leik. Leikurinn er allur á íslensku og er í honum að finna spurningagrunn með yfir 10.000 spurningum í ýmsum flokkum, þar á meðal krakkaflokk.

 

start-Simascreen

Upphaf verkefnisins má rekja til Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar sem haldin var á Akureyri í apríl sl. Þar lögðu forsvarsmenn verkefnisins, Matthías Rögnvaldsson, Björn Gíslason og Herdís Björk Þórðardóttir, fyrstu drög af leiknum og stofnuðu fyrirtækið Appia ehf. í framhaldinu utan um verkefnið. Verkefnið hlaut stuðning Vaxtasamnings Eyjafjarðar og kom fjárfestingasjóðurinn Tækifæri einnig að verkefninu. 2know leikurinn hefur verið helsta verkefni Appia frá stofnun og starfa hjá félaginu tveir starfsmenn í fullu starfi, Aron Skúlason og Sigurður Óli Árnason, en auk þeirra hafa Tómas Jóhannesson og Erla Rán Friðriksdóttir komið að gerð leiksins.

 

Leikurinn sem kom út í dag er í fyrstu aðeins fáanlegur fyrir android stýrikerfið en hægt er að nálgast leikinn í Google Play Store. Gert er ráð fyrir því að strax í næsta mánuði verði iOS útgáfa leiksins fáanleg. Í framhaldinu er síðan ráðgert að gefa út sérstaka skólaútgáfu af leiknum sem og útgáfu fyrir erlendan markað.

 

Heimasíða: www.2know.is

 

Nánari upplýsingar um 2know veita Björn Gíslason (822-4707) og Matthías Rögnvaldsson (864-0083).

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira