Aðeins einni viku eftir að tækniheimurinn fór á hliðina yfir $4 milljarða tilboði frá auglýsingarisanum Google í Snapchat appið þá berast fleiri fréttir þessu tengdu.
Núna segir sagan að Instagram sé að þróa einkaskilaboð í Instagram appið sem mundi þá líklega hafa sambærilega virkni og Snapchat appið hefur. Mig grunar að Snapchat forriturum hefði þótt þæginlegt að eiga $4 milljarða í bankanum þegar þessar fréttir berast.
Mynd: Theverge