Nokia Lumia 925

eftir Jón Ólafsson

Lappari fjallaði um Nokia Lumia 920 fyrr á árinu, en notendur hafa tekið honum opnum örmum og sem dæmi þá var Lumia 920 valinn sem snjallsími ársins 2012 af lesendum Engadget. Aðalumkvörtunarefni hjá mér og mörgum öðrum var þykkt og þyngd símans.
Nokia hefur nú komið með tvær týpur sem leysa Lumia 920 af hólmi. Lumia 928 kom fyrst en hann er hannaður fyrir Bandaríkjamarkað og síðan kom Nokia Lumia 925 sem ég ætla að fjalla um hér.

Eins og má sjá á þessum samanburði þá er Lumia 925 búinn svipuðum vélbúnaði og forveri sinn Lumia 920. Hann er samt með nokkrum nýjungum og þá helst sem snúa að myndvélinni. Lumia 925 er einnig mun léttari og þynnri en eins og fyrr segir þótti þyngd og þykkt Lumia 920 vera hans helstu ókostur.

Að sögn Nokia er Lumia 925 hin fullkomna Lumia blanda, tekur alla kosti við Lumia 920 og pakkar þeim í þynnri og léttari skel. Hittu þeir naglann á höfuðið?

 

Hönnun og vélbúnaður

Lumia 925 er án efa eitt það fallegasta símtæki sem ég hef handleikið, síminn er massífur og virkar sterklegur í hendi en álið sem umleikur símann gerir mikið fyrir hann. Útlitið hefur breyst mikið frá Lumia 920 en Lumia 925 er fyrsti síminn í Lumia línunni sem er ekki allur úr Polycarbonate.

Framhliðin er þakin af gullfallegum 4.5″ skjá sem rúnast út til hliða og fellur hann síðan að hliðunum sem eru úr áli, mjög vandaður frágangur að mínu mati.

 

Lumia925_10

 

Bakhlið úr Polycarbonate sem hægt er að fá í svörtu, gráu og hvítu en ef bakhlið er svört þá er álið í hliðum einnig svart. Á bakhlið er myndavélin, flash, hátalari og tengi fyrir þráðlausa hleðslu sem er valmöguleiki.

Hér er smá samanburður á þynngt og þykkt milli Lumia 925 og Lumia 920.

Þyngd
Lumia 925 er 138gr    (um 25% léttari)
Lumia 920 er 185 gr

Þyggt
Lumia 925:  129 x 70.6 x 8.5 mm   (um 20% þynnri)
Lumia 920:  130.3 x 70.8 x 10.7 mm

Nokia Lumia 925 er því léttur sími en hann vegur aðeins 138 gr sem er meira en t.d iPhone 5 sem vegur 112 gr en sambærilegt við Samsung S3 og S4 sem vega rétt rúm 130gr.

 

Á framhlið eru þrír snertitakkar eins á öllum Windows Phone símum, bakka, heim og leit. Heim takkinn er lítillega breyttur en hann er mun bjartari (hvítari) á Lumia 925 meðan hann gaf örlítið gulleita birtu á Lumia 920. Þar fyrir utan eru þrír hefðbundnir takkar en það er sértakki fyrir myndavél, powertakk ásamt hækka/lækkatakka. Staðsetning á þessum tökkum er mjög góð og næst með léttu móti í alla takka með annari hendi. Eins og ég hef sagt áður þá þarf að huga vel að staðsetningu takka á stórum símum (4″ eða meira). Þeir eiga t.d. ekki að vera með power takka efst uppi eins og t.d. HTC flagskipin og  Samsung S2-S3-S4 er með því þá þarf mjög líklega að nota báðar hendur til að aflæsa skjánum. Takkarnir eru frekar stífir og virðast vera mjög sterklegir.

 

 

Lumia 925 er með 1.5GHz Snapdragon Dual-Core örgjörva og með 1GB í vinnsluminni. Þessi öflugi örgjörvi skilar sýnu í viðbragðsgóðu viðmóti og hef ég aldrei orðið var við hökt í símann, hvort sem er í stýrikerfinu sjálfu, forritum eða í leikjum.

Að mínu mati er galli að Lumia 925 sé bara með 16GB geymslurými sem nýtist undir stýrikerfi eða ljósmyndir og annað margmiðlunarefni. Þegar ég var búinn að setja upp forrit, tölvupóst o.s.frv. þá var ég “bara” með um 11GB laus. Þar sem ég tengi símana mína reglulega við tölvu til að tæma af þeim þá hef ég aldrei lent í plássleysi á þessum né öðrum símum sem er með meira en 8GB. Ég sé fyrir mér að það sé ekki lengi gert að fylla minnið ef teknar eru upp lengri upptökur í 1080p.

Lumia925_1

Það er framleidd sérútgáfa af Lumia 925 sem seldur verður hjá Vodafone sem er með 32GB en ég dreg í efa að þessi útgáfa verði fáanleg á Íslandi.

Þar sem Windows Phone er beintengt við SkyDrive þá bætist við ókeypis 7GB í skýinu sem nýtist til að taka afrit af símanum sjálfum eða af ljósmyndum og myndböndum.

Einfallt er að kaupa sér meira Skydrive geymslupláss (verð 07.07.2013)
•auka 20GB kosta um 1200 krónur á ári
•auka 50GB kosta um 3200 krónur á ári
•auka 100GB kosta um 6400 krónur á ári

Hér má sjá samanburð á Skydrive við aðrar lausnir sem og verðtöflu.

Mér finnst vanta rauf fyrir Micro-SD minniskort á Lumia 925 eins og er í Lumia 520, 620, 720 og 820… mér finnst satt að segja furðuleg ákvörðun að minnka minnið niður í 16GB og sleppa því að bæta við minnisrauf.

 

Tengimöguleikar

Lumia 925 er með Micro USB tengi (USB 2.0) efst á símtæki þannig að einfalt er að tengja símann við tölvu til að sækja eða setja á hann efni. Þetta er kostur þar sem notendur geta notað allar Micro USB snúrur sem þeir eiga fyrir, það er ekkert sérstakt tengi eða millistykki sem þarf. Þetta tengi er sameiginlegt með “öllum” snjallsímum…. öðrum en iPhone.
Efst á síma er einnig 3.5 mm heyrartólstengi og sleði fyrir SIM kort. Lumia 925 er með Bluetooth 3.0.

Lumia925_7

Lumia 925 er með þráðlausu neti eins og við er að búast sem styður 802.11 a/b/g/n og allar helstu dulkóðanir sem skipta máli eins og: WPA2 (AES/TKIP), WPA, WPA-Personal, WEP, WPA2-Personal, WPA-Enterprise, WPA2-Enterprise, PEAP-MSCHAPv2, EAP-SIM, EAP-AKA

Lumia 925 er einnig með NFC kubb sem býður meðal annars uppá borganir, samnýtingu gagna, og notkun NFC merkja. Ég hef notað NFC merki til að starta upp airplane mode en þar sem ég með einu handtaki slökkt á símtölum, sms, 3G/4G. Líka er hægt að forrita merkið með heimilisfangi sem ræsir síðan upp Here Navigation, eða með símanúmeri til að hringja í.

Eftir því sem ég best veit þá er enginn að selja NFC merki hér á Íslandi en ég náði að væla merki hjá Símanum í prófanir.

Þessi virkni sem ég lýsti í upphalegri umfjöllun er ekki næginlega nákvæm og gleymdi ég einfaldlega að leiðrétta þetta.
Ég nota NFC eingöngu með NFC merkjum en ég er með merki á náttborðinu og þegar ég legg símann á það þá slökknar á öllum hljóðum (nema vekjara) ásamt því að póst samstilling hættir. Síðan þegar ég lyfti símanum þá koma öll hljóð aftur á og samþætting á pósti hefst að nýju.

 

Fljótlega verður hægt að nota sjallsíma á 4G kerfum símfyrirtækja, verður notast við 800/1800 böndin á Íslandi. Nokia Lumia styður því 4G að fullu eins og fjallað er um hér.
Það eru framleiddar tvær týpur af Lumia 925 og er RM-892 týpann sem þú átt að kaupa fyrir Ísland.

2G – 850 / 900 / 1800 / 1900
3G –  850 / 900 / 1900 / 2100
4G – 800 / 900 / 1800 / 2100 / 2600

 

Rafhlaða og lyklaborð

Ég er mjög ánægður með rafhlöðuendingu á Lumia 925 en hún er betri en ég er vanur á Lumia 920 sem þó er ansi góð. Lumia 925 er með innbyggða 2000mAh Li-Ion rafhlöðu sem er gefinn upp fyrir.

  • Tal yfir 2G:  18.3 tíma
  • Tal yfir 3G:  12.8 tíma
  • Biðtími: 55 tímar

Þetta er töluverð uppfærsla frá Lumia 920 og hef bara einu sinni fengið meldingu um að rafhlaðan sé að tæmast hjá mér þessa daga sem ég hef verið að prófa tækið. Ég er samt ávallt tengdur við WiFi eða 3G og að samstilla 3 EAS tölvupóstreikninga ásamt því að lesa töluvert af bæði heimasíðum og nota Twitter og Facebook slatta yfir daginn.

Hér má sjá nokkur ráð sem hjálpa þér að lengja rafhlöðuendinguna.

Lumia925_6

Lumia 925 er ekki með innbyggðri þráðlausri hleðslu eins og Lumia 920 og hefur það sitt að segja með hversu þynnri og léttari hann er. Það er hægt að kaupa hlíf fyrir Lumia 925 sem er með þráðlausri hleðslu. Við það verður hann svipaður að þykkt og þyngd og Lumia 920.

Góða við þessa tækni er að þráðlausa hleðslan í Nokia símum byggir á staðlaðri tækni svo hægt verður að hlaða símann á fleiri stöðum þegar tæknin verður útbreiddari en sjá má fyrir sér að innan fárra ára verði stofuborðið orðið hleðslustöð fyrir fjarstýringar og snjallsíma.

Hér má sjá myndband þar sem maður kaupir þráðlausa hleðslu og kemur henni fyrir í náttborðinu sínu. Þessi lausn virkar fyrir Nokia Lumia 920 og 925 (með hlíf) eða Nexus 4.

 

Lumia 925 er eins og aðrir Windows Phone 8 símar með fullt Qwerty lyklaborð. Lyklaborðið er ekki enn komið með íslensku útliti en allir íslensku stafirnir eru engu að síður til staðar. Sem dæmi til að skrifa Þ þá er T haldið inni, til að skrifa Ð þá er D haldið inni o.s.frv.

 

Hljóð og mynd

Skjárinn á Lumia 925 er gullfallegur Amoled skjár og er með þeim skarpari sem ég hef séð en ClearBlack tæknin gefur auka dýpt í svarta litinn ásamt því að allir litir verða líflegir og skarpir. Skjárinn er 4.5″ stór með Corning Gorilla Glass sem styður upplausnin uppá 1280×768 punkta (WXGA) og er hann því 15:9.

Punktaþéttleikiinn er 334ppi sem er með því hæsta sem þekkist í snjallsímum og aðeins meira en Apple notar í iPhone 5 símann sinn. Nokia eyddi miklum tíma og metnaði í skjárinn er notar tækni sem kallast PuremotionHD+. Með PuremotionHD+ hefur Nokia tekist helminga þann tíma sem tekur að skipta um lit á punktum ásamt því að Nokia tryggir með þessu skjá sem ræður við að lágmarki 60 FPS í allri afspilun/myndvinnslu.

Snertivirkni er mjög góð í Lumia 925 og sú sama og í 920 en Nokia segir að þú getir notar símann með vettlingum, penna, hníf o.s.frv. Ég prófaði að nota Lumia 925 með vettlingum og virkaði það mjög vel.

Nokia hafa náð mjög langt með myndavélar í snjalltækjum og er myndavélin í Nokia Lumia 925 engin undantekning. Vélin er að mínu mati sú besta sem fáanleg er á síma í dag, allavega þangað til Nokia Lumia 1020 kemur á markað en hann verður með 41MP myndavél.
Hér má sjá nokkrar myndir sem ég tók á Lumia 925, Lumia 720 og iPhone 5.

Lumia925_12

Nokia hefur þróað myndavélatækni sem þeir kalla PureView sem fyrst kom í Symbian síma sem kallast PureView 808 en sú myndavél er almennt talin vera bylting í snjallsímamyndavélum.

Þegar Nokia tilkynnti að Lumia 920 notaði PureView þá var ástæða til að gleðjast en þessi tækni er líka í Lumia 925. Það má segja að myndavélin sé sú sama en Nokia bætti við auka linsu sem á að auka myndgæði í dagsbirtu sem og til að gera góðar myndir í lélegri birtu enn betri.

Þó svo að myndavélin í Lumia sé “bara” 8.7 MP þá er myndavélin frábær í alla staði og minnir mann á að fjöldi MP tryggir ekki góðar myndir, linsan er “allt” sem skiptir máli.

Carl Zeiss Tessar linsan er “fljótandi” (Optical image stabilization eða OIS hér eftir) sem þýðir með mikilli einföldun að myndir verða mun stöðugri heldur en þekkst hefur hingað til í snjallsímum. OIS gerir Lumia 925 kleift að hafa ljósopið (f/2.0) lengur opið þegar verið er að taka myndir, sem skilar sér í mun skýrari og skarpari myndum. Þetta sést best þegar birtuskilyrði eru slæm. Gæðamunurinn milli Lumia 925 og annara myndavélasíma við léleg skilyrði er mikill og fær myndavélin hæðstu einkunn frá mér.

Lumia925_8

Eins og komið hefur fram tekur Lumia 925 góðar ljósmyndir en það er í videóupptöku sem OIS fær að njóta sín til fulls. Þar sem linsan skilar stöðugri myndum þá skilar hún af sér mjög skýrri og góðri videoupptöku. Hægt er að taka upp í 1080p upplausn (@30 rammar á sekúndu).

Venjulega þarftu að einbeita þér að því að halda myndavélasímum alveg stöðugum til að ná góðum videóum en þetta þarf ekki með Lumia 925. Carl Zeiss Tessar linsan skilar bjartari video og víðu sjónarhorni sem að skilar aftur af sér skarpari myndum og myndböndum en ég hef séð áður í snjallsímum.

Nokia hafa uppfært myndavélahugbúnaðin með nokkrum skemmtilegum auka öppum en helst ber að nefna Nokia Smart Cam.  Með Smart Cam er einfallt að taka út hluti sem t.d. labba inn í uppstillta mynd og svo margt meira… hér er hægt að sjá ágætt samansafn af myndböndum um Nokia Lumia 925 og farið er vel yfir myndavélina þar.

Til að styðja við hljóðupptökur og til að bæta hefðbundin talgæði notar Nokia þrjá hljóðnema sem skilar sér í einstökum gæðum á hljóðupptökum. Símtalsgæðin eru þau ein þau bestu sem ég hef áður heyrt úr síma en þessir þrír hljóðnemar vinna saman að því að eyða vind- og umhverfishljóðum úr samtölum (Multimicrophone noise cancellation). Þó að hátalarar í Lumia 920 séu betri að mínu mati þá skiluðu þeir ágætis hljómi hvort sem var við símtöl með hátalara eða við tónlistarafspilun.

Ég er búinn að nota símann í tæplega tvær vikur og enn hef ég ekki lent í Call Drop sem er þó nokkuð algengt hér á Akureyri.

Lumia 925 er einnig með 1.2MP myndavél á framhlið sem tekur myndir í allt að 1280×960 (f/2.4) og hentar þvi vel t.d. í Snapchat eða myndsímtöl (t.d. Skype).

 

Margmiðlun og leikir

Margmiðlunarupplifun á Lumia 925 er frábært og ræður hann við að spila “allt” það sem ég ætlaði honum. Hvort sem það var bíómynd af innra-minni, Youtube video eða aðra vefstrauma. Lumia 925 er eins og aðrir Windows Phone símar með góðum tónlistarspilara og með XBOX music (eða Spotify) áskrift þá ertu kominn með öfluga tónlistarkosti. Einfalt er einnig að bæta við tónlist eða bíómyndum beint af tölvu og ætti Lumia 925 að ráða við allt sem þú gætir vilja notað hann í.

Ég er samt enn að ströggla með þá ákvörðun Nokia að hafi ákveðið að minnka geymsluminni úr 32GB (920) niður í 16GB í Lumia 925. Sem margmiðlunartæki þá hefði ég óskað eftir 32/64GB geymslurými og Micro-SD rauf þannig að margmiðlunarefni gæti jafnvel verið sér á stóru SD korti.

 

 

Hugbúnaður og samvirkni

Windows Phone 8 stýrikerfið virkar frábærlega á Lumia 925 og stýrikerfið, valmöguleikar og öll virkni er mjög góð. Til viðbótar við þá virkni sem við þekkjum af Lumia símum sem ég hef fjallað um (620, 720 og 920) áður þá koma nokkrar skemmtilegar viðbætur.

Lumia925_4

Lumia 925 kemur með Amber uppfærslu (GDR2) og sem dæmi um viðbætur má nefna lita prófíla fyrir skjáinn, hægt er að tvísmella á læsiskjá til að vekja símann, útvarpi og möguleika til að samstilla við Google svo að eitthvað sé nefnt.

Data Sense er líka skemmtileg viðbót en þetta er app sem notað er til að fylgjast með gagnamagni sem síminn notar. Það fylgist bæði með 3G/4G notkun sem og magni sem síminn sækir yfir þráðlaust net (Wi-Fi). Hægt er að stilla hámark á mánuði, sem sagt það sem er innifalið í áskriftinni sem notandi er með og hægt er að láta símann slökkva á gagnanotkun þegar þessu hámarki er náð. Frábær viðbót sem ég fagnaði mikið.

Lumia925_9

Lumia 925 kemur eins og aðrir Windows Phone 8 símar með glæsilegri hugbúnaðarsvítu sem gerir það að verkum að mig vantaði ekki mörg forrit til viðbótar. Sem dæmi um forrit sem fylgja ókeypis með má nefna Office Pakkinn með Word, Excel og PowerPoint, One Note, Here svítan ásamt þessu venjulega eins og tölvupóstforrit, pdf lesara, reiknivél, dagbók, tengiliðir, vekjaraklukka o.s.frv.

Office pakkinn gerir notanda kleyft að vinna með Word, Excel og PowerPoint skjöl beint af SharePoint, SkyDrive eða af símanum sjálfum. Hægt er að breyta þeim, senda með tölvupósti eða bara vista í skýið án þess að þurfa að kaupa auka hugbúnað. Áður en ég fékk mér Windows Phone 8 síma þá hafði ég aldrei kynnst svona góðri skjalavinnslu á snjallsíma áður.

Lumia925_2

Vafrinn í Windows Phone 8 er gríðarlega góður og að mínu mati einn sá besti af þeim vöfrum sem fylgja með snjallsímum í dag. Chrome fyrir Android er reyndar góður en ég á erfitt með að meta hvorn mér líkar betur við.

Ef þig vantar fleiri forrit þá býður Microsoft Store í dag (07.07.2013) upp á rúmlega 160 þúsund forrit sem er jú minna en Google og Apple bjóða uppá en ég verð samt að segja að ég fann forrit fyrir allt sem mig vantaði. Hér er ágætislisti yfir forrit sem Íslenskir WP notendur nota og hér má lesa um Nokia Here leiðsöguforrit sem fylgja ókeypis með öllum Nokia Lumia símtækjum

 

Niðurstaða

Nokia Lumia línan er hægt og sígandi að þroskast meira og meir, hún er að vera fágaðri og betri, Nokia Lumia 925 er sannarlega hetjutæki sem allir ættu að skoða betur. Að mínu mati er þetta besti og fallegasti Windows Phone 8 síminn á markaðnum í dag og þeir sem voru í vafa með Lumia 920 vegna þyngdar og þykktar ættu að líka vel við þennan.

Að mínu mati er Nokia komnir eins langt með Windows Phone 8 og mögulegt er og boltinn því hjá Microsoft með að bæta við kostum við stýrikerfið til þess að þróunin geti haldið áfram.  Sem dæmi þá má nefna skjáinn en þó svo að hann sé einn sá besti á markaðnum í dag þá “vantar” HD upplausn sem kemur ekki fyrr en í GDR3 uppfærslu sem er væntanlega seinna í vetur.

 

 

Nokia Lumia 925 er að mínu mati í algerum sérflokki þegar kemur að samanburði á myndavélasímum en hann tekur það sem Lumia 920 gerir vel og gerir það enn betur. Lumia 925 er alvöru snjallsími sem getur tekið vel nothæfar tækifærismyndir hvort sem það er dagur, kvöld eða nótt. Windows Phone 8 stýrikerfið er mjög stapílt og hraðvirkt á Lumia 925 og hef ég aldrei orðið var við neina hnökra við keyslu á kerfinu sjálfu eða á forritum eða leikjum sem ég nota. Windows Phone byggir á lifandi reitum sem gerir símann persónulegan og þæginlegan að mínu mati.

Lumia925_11

Ég nefndi galla við Lumia 920 vera þyngd, þykkt og vöntun á minnisrauf og Nokia hefur með Lumia 925 lagað tvennt af þessu. Ég var því í örlitlu brasi með að tína til galla þar sem þetta er sannarlega besti snjallsími sem ég hef prófað. Helst er það skortur á kortarauf  og minna geymslupláss sem eru gallar og vonbrigði að mínu mati.

 

Eins og oft áður þá er hér myndband þar sem Joe Belfiore yfirmaður Windows Phone deildar Microsoft fer yfir kosti WP8.

 

Hvað finnst þér?

Þú hefur kannski áhuga á þessu...

2 athugasemdir

Haukur 27/10/2013 - 13:06

Hvar fær maður NFC kubb sem getur gert þetta sem þú lýsir í greininni?

Reply
Lappari 27/10/2013 - 15:22

Sæll Haukur

Í fyrsta lagi þá var ég að leiðrétta NFC hlutan aðeins hér að ofan en fyrri lýsing var ekki næginlega nákvæm. Ég hef sem sagt ekki getað forritað merki sem er með algerri sjálfvirkni heldur ræsa merkið upp forrit eða aðgerð sem ég þarf að staðfesta.
Núna er merkið á náttborðinu og þegar ég legg símann á það þá opnast Airplane Mode sem ég smelli á til að slökkva á allri GSM, 4G og Wifi virkni = engar tilkynningar.

Eftir því sem ég best veit þá er enginn að selja þessi merki hér á Íslandi en ég náði að væla út merki hjá Símanum í þessar prófanir.

Reply

Skildu eftir athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Þessi vefur notast við vafrakökur. Samþykkja Lesa meira