Nú er komið að öðru viðtalinu hér á Lappari.com sem kallast einfaldlega Föstudagsviðtalið. Hugmyndin er að taka viðtal við “venjulegt fólk”, harða nörda sem og einstaklinga sem eru áberandi í tölvu og tækniheiminum, leyfa þeim að segja aðeins frá sér og hvað þeir eru að bralla. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að hafa þetta létt, skemmtilegt og vonandi áhugavert fyrir lesendur.
Sá sem við spjöllum við núna er hann Gummi Jóh hjá Símanum en ef einhver er með puttann á púlsinum varðandi snjallsíma og tæknimál almennt þá er það hann.
Hver ert þú og hvaðan ertu?
Guðmundur Jóhannsson, kallaður Gummi Jóh. Hjarta mitt slær í takt við umferðarljósin í Mjóddinni, ég er Breiðhyltingur út í gegn en bjó þó fyrstu árin í Mývatnssveit og þangað hef ég mjög sterkar taugar og fór þangað í sveit á uppvaxtarárunum.
Við hvað starfar þú?
Ég er verkefnastjóri hjá Símanum. Stýri stærri upplýsingatækni og vöruþróunar verkefnum hjá Símanum og svo hef ég haft yfirumsjón með veru Símans á samfélagsmiðlum svona til hliðar.
Hvernig síma ertu með í dag?
Skipti mjög ört þar sem ég hef nokkuð greiðann aðgang að símtækjum en hef haft núna Sony Xperia Z Android tæki og er ég mjög hrifinn af honum. Er svo með iPad 4 á móti símanum, nokkuð jöfn skipti í notkun á þeim tveimur tækjum.
Hver er helsti kostur við símann þinn?
Hann er af þessari akkúrat stærð, ekki of lítill og ekki of stór. Með góðum skjá og myndavél ásamt því að Sony hafa ekki gengið oft langt með að setja sitt viðmót ofan á Android eins og margir gera.
Er eitthvað sem þú þolir ekki við símann?
Ekkert sem mér dettur í hug, rafhlaðan er góð sem er svona það oftast sem pirrar mann ásamt því að Android fær að njóta sín þar sem Sony hafa ekki gengið of langt að koma eigin útliti ofan á stýrikerfið. Þetta er einn besti Android sími sem ég hef verið með.
Nýtist síminn við vinnu? Mögulega ómissandi?
Aðgangur að tölvupósti og dagatali er það sem ég nota mest, eitthvað sem er gott þar sem vinnan mín snýst mikið um að sitja og halda fundi þannig að ég er ekki endilega alltaf fyrir framan tölvu. Einnig nota ég hann mikið til að minna mig á eitt og annað, annað hvort með aðgerðarlista (todo) eða með Evernote. Nota líka Lync appið nokkuð mikið til að ná á vinnufélagana. Nota hann svo mikið til skipuleggja lífið á móti konunni þar sem hún ferðast mikið vinnu sinnar vegna, erum með innkaupalistann rafrænann og svo nota ég hann mikið til að stjórna ýmsu heima eins og tónlistinni og öðru.
Hvernig var fyrsti síminn sem þú fékkst þér?
Nokia 5110, skriðdreki sem virkar enn. Af gömlu símunum þótti mér þó alltaf vænst um Ericsson T39, það var ótrúlegt tæki.
Ef þú mættir velja hvaða síma sem er, hvaða síma mundir þú velja?
Lumia 925 með Android eins og það kemur af kúnni frá Google. Semsagt án allra útlitsviðbóta frá framleiðanda tækisins. Er þó mjög hrifinn af Windows Phone en það er alltaf eitthvað sem stöðvar að ég geti verið lengi með WP síma, vantar oftast eitthvað uppá svo að hann detti fumlaust inn í allt það sem ég nota tækin í.
Hvaða tæknisíðum fylgist þú reglulega með?
Verge, Engadget, tuaw.com, AndroidPolice svona ef ég ætti að telja eitthvað. Er með ótrúlegt magn í RSS lesaranum sem ég renni í gegnum á hverjum degi. Les líka nokkuð af tölvuleikjasíðum til að halda barninu í mér gangandi.
Athugasemd Ritstjóra: Þar sem ekki er minntist www.lappari.com þá mun þetta viðtal eyðast sjálfkrafa mjög fljótlega.
Eitthvað sem þú vilt segja að lokum?
Nýti tækifærið til að hvetja fólk til að detta ekki ofan í stýrikerfis gryfjur. Fer í mínar fínustu taugar þegar að fólk sér heiminn bara með einum hætti. Öll stýrikerfi á snjallsímum og tölvum eru góð og hvert þeirra hefur sína styrkleika og veikleika. Sama með Xbox á móti Playstation, þetta er allt gott og blessað og menn eiga ekki að fara í eitthvað stríð þó að einhver annar velji annað stýrikerfi / tæki en maður sjálfur hafði vaið.
Við lifum á ótrúlega skemmtilegum tímum þegar kemur að tölvum og tækni, verið að framleiða og gefa út hluti sem maður hefði haldið fyrir stuttu síðan að myndi aldrei gerast. Hlutir sem auka lífsgæði (mögulega) og skemmtanagildi og við eigum að fagna allri framþróun, óháð frá hvaða liði hún kemur. Því meiri og harðari samkeppni, því betra fyrir okkur sem notendur.
Þá er það skjáskotið af Sony Xperia Z
10 athugasemdir
Lappari.com er skemmtilegt nafn á svona síðu
Það er löng og merkileg saga á bakvið Lappara nafnið sem er jafnvel tilefni í sér pistill… Ekki lýsandi fyrir efnið á síðunni svo sem… Lappari er bara orðið það verðmætt vörumerki að það er erfitt að breyta því núna 🙂
Ég skil ekki hvernig háttsettur starfsmaður Símans getur verið að hæla Xperia Z. Góður skjár en aðeins ef horft er beint framan á hann. Hörmuleg myndavél og all glass design er fortíðin. Hefði verið rosalega góður sími fyrir 4 árum. En hey, segist lesa/horfa/hlusta á The Verge, þeim finnst það líka.
@grétar steinn
Þó að ég lesi The Verge þarf ég ekki að vera sammála þeim. Ég er hrifinn af þessum síma, hrifnari af honum en S4 svona persónulega en það eru skoðanir mínar en ekki vinnuveitanda míns.
HTC One væri eflaust það Android tæki sem ég myndi velja sem daily driver, og þá með stock Android frekar en Sense. Ég myndi taka all glass hönnun yfir plastið hjá Samsung hvenær sem er.
Ég hef aldrei upplifað vandræði með skjáinn, kannski af því að hér hefur ekki verið mikil sól sem eflaust gera þetta að alvöru vandamáli. Fyrir mér er hann frábær miðað við þá mánuði sem ég hef notað hann. Myndavélin er góð, myndirnar sem ég tek af matnum mínum og dóttur koma mjög vel út. Eina sem mætti laga við hana væri að hún væri fljótari að koma sér í gang, sérstaklega út frá lock screen.
En svona er þetta, each to his own.
@Gummi Jóh
Já það er sko sannarlega each to their own i þessum smartphone heimi 😉 Var alveg rosalega svektur með Xperia Z. Ég verð samt að vera alveg sammála því að skyrdollu plastið í S4 er hörmulegt líka. Finnst það líklegast mest overrated sími sem finnst og þá sérstaklega þegar kemur að skjánum. Myndi alltaf velja Xperia Z fram yfir hann líka. Held að HTC One sé málið, finnst hræðilegt að hafa ekki physical Android takka á honum en held að maður komist yfir það.
Er samt bara almennt vandamál við Android, enginn sími er fullkominn en Google services eru ómissandi. Allir geta lifað án þjónustu Apple, en um leið og Google hættir að bjóða alla sína þjónustu á iOS þá verður iPhone useless.
Ég var með allt mitt hjá Google meðan ég var með Android síma og í raun og veru löngu áður. Google eru ekki með neinar þjónustur (nema Google search app) fyrir Windows Phone. Ég hélt að lífið án Google væri óhuggsandi en það er merkilega gott 🙂
Eina Google þjónustan sem ég nota núorðið er Analytics og er ég að spá í að færa mig í annað kerfi enda fullt af spennandi lausnum til.
Verða mögulega dagbókarfærslur hjá á Lappari.Com fyrsta mánuðinn: Lífið án Google – Dagur 1
@Gummi Jóh
Þetta fékk mig líka til að hugsa. Hversu góð myndavél er nægilega góð vél? Eru myndgæði úr símum orðið pointless spec race?
Myndgæði úr símum verða seint pointless spec race if you ask me. Það að vera með FRÁBÆRA myndavél í símanum skiptir rosalega miklu máli, þegar þú hefur einu sinni kynnst því.
Ætli mín fyrsta reynsla af alvöru myndavél í símanum hafi ekki verið N8. Síðan þá, kemur ekkert til greina hjá mér nema besti myndavélasíminn á svæðinu. Myndavélin er líklega það hardware/softver sem snjallsímanotendur nota langmest,….fyrir utan þetta basic, póst, símavirkni og samf.miðla.
Er reyndar nokkuð sammála, maður notar myndavélina svakalega mikið í þessum símum. Eftir að ég fékk mér Lumia síma þá skil ég SLR vélina furðulega oft eftir heima og nota bara símann.
Og þegar Lumia 1020 kemur þá,……..
Það eru bara rugl myndir sem hægt er að ná með honum sbr þessi hérna http://press.nokia.com/wp-content/uploads/mediaplugin/photo/nokia-lumia-1020-pro-highres-18.jpg